27.05.2014

Rio Tinto Alcan hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála sem veitt voru í fyrsta sinn í dag á ráðstefnunni "Aukið jafnrétti - aukin hagsæld".

Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, UN Women á Íslandi, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Samtök atvinnulífsins.

Fjórtán fyrirtæki voru tilnefnd en niðurstaða dómnefndar, sem skipuð var fulltrúum ofangreindra aðila, var einróma.

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti verðlaunin og sagði að fyrirtækið hefði með markvissum hætti stuðlað að jafnrétti í starfsemi sinni um árabil.

"Stjórnendur fyrirtækisins hafa með eftirtektarverðum hætti breytt menningu fyrirtækisins svo bæði kynin eiga þar nú jafna möguleika til að starfsframa og þar er stuðlað að launajafnrétti," sagði Ragnheiður Elín. "Árangur fyrirtækisins er sérstaklega eftirtektarverður þar sem starfssvið þess var um áratugaskeið álitið starfsvettvangur karla fremur en kvenna. Forstjóri fyrirtækisins hefur, ásamt stjórnendateymi sínu, aukið vitund í samfélaginu um kynjajafnrétti og sýnt að jafnrétti stuðlar að aukinni hagsæld."

Rannveig Rist tók á móti verðlaununum og sagði við það tækifæri að áður fyrr hefði hún talið að jafnrétti væri svo sjálfsagður hlutur að það hlyti smám saman að koma af sjálfu sér. Raunin væri hins vegar önnur; jafnrétti kæmi ekki af sjálfu sér heldur þyrfti að koma því á með markvissum aðgerðum.

Frá ráðstefnunni og afhendingu verðlaunanna:


Auk Rannveigar Rist forstjóra voru fulltrúar Rio Tinto Alcan á Íslandi á ráðstefnunni þau Ólafur Teitur Guðnason upplýsingafulltrúi, Jakobína Jónsdóttir framkvæmdastjóri starfsmannasviðs og Auður Ýr Sveinsdóttir leiðtogi gæðamála og straumlínurekstrar.


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar