Álverið í Straumsvík er hluti af Rio Tinto, einum stærsta álframleiðanda heims. Fyrirtækið einsetur sér að vera í fremstu röð í allri starfsemi, vinna að stöðugum umbótum og starfa ávallt í sátt við umhverfi og samfélag.

7 apr. 2025

Rio Tinto á Íslandi fékk sérstaka öryggisviðurkenningu

Rio Tinto veitti álverinu í Straumsvík sérstaka öryggisviðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í heilbrigðis- og umhverfismálum. ...

18 mar. 2025

Mín framtíð

Starfsfólk álversins í Straumsvík tók þátt í Mín framtíð í Laugardalshöll dagana 14-16.mars 2025. ...

14 mar. 2025

Hvatningarverðlaun Álklasans fyrir lokaverkefni í Stóriðjuskólanum

Þrír nemendur úr framhaldsnámi Stóriðjuskólans fengu hvatningarverðlaun á Nýsköpunarmóti Álklasans þann 13. mars 2025. ...

7 mar. 2025

Rannveig Rist á Iðnþingi

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, var í viðtali við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, á Iðnþingi sem fram fór í Hörpu 6.mars 2025...

15 jan. 2025

Útskrift framhaldsnema við Stóriðjuskóla ISAL

Fimmta útskrift úr framhaldsnámi Stóriðjuskólans fór fram í Straumsvík 14. janúar 2025...

9 jan. 2025

Unnsteinn Manuel Stefánsson hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2024

Á ferli sínum hefur Unnsteinn sýnt fram á ótvíræða listræna hæfileika og fjölhæfni og fundið farvegi til þess að þroskast og takast á við nýjar áskoranir og fjölbreytt verkefni....

20 des. 2024

Hinsegin vottaður vinnustaður

Rio Tinto á Íslandi hefur fengið vottun frá Samtökunum ´78 sem hinseginvænn vinnustaður ...

30 okt. 2024

Neyðarkall og styrkur til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar

Neyðarkallinn er sem fyrr mættur í Straumsvík. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, tók við Neyðarkallinum en við ...

28 ágú. 2024

Íþróttastyrkir til ungmenna í Hafnarfirði

Afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) fór fram í Straumsvík í vikunni. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Rósa Guðbjarts...

19 apr. 2024

Rio Tinto styrkir Rauða krossinn um 208 milljónir vegna jarðhræringa við Grindavík

Rio Tinto hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi styrk að upphæð 208 milljónir króna, eða jafnvirði 1,5 milljónum dollara, til stuðnings samfélagsins sem hefur orðið fyrir áhrifum jarðskjálfta og eldgo...

Framleiðslan

Helsta framleiðsluafurð ISAL eru sívalar stangir úr áli sem í Straumsvík eru jafnan kallaðir boltar. Þeir eru framleiddir í fjölmörgum málmblöndum og í mismunandi stærðum, allt eftir kröfum viðskiptavina okkar. Afurðir ISAL eru notaðir í margvíslegar sérhæfðar vörur, einkum í byggingariðnaði og bílaiðnaði.

SJÁ NÁNAR

Fólkið

Starfsfólkið í Straumsvík er mikilvægasta auðlind fyrirtækisins. Umhyggja fyrir hvert öðru er eitt af okkar gildum, það er hluti af því hver við erum og hvernig við störfum hverja vakt, hvern dag. Ekkert er mikilvægara en öryggi og velferð starfsfólks, verktaka og samfélagsins.

Starfsfólk ISAL eru um 380 talsins. Sérfræðingar, stjórnendur og millistjórnendur eru hátt í 70 og eru flestir þeirra með háskólamenntun. Flestir hafa menntun á sviði verkfræði og tæknifræði, en einnig eru í okkar sérfræðingahópi viðskiptafræðingar, vörustjórnunarfræðingar og fólk með háskólapróf í jarðefnafræði, eðlisfræði, tölvunarfræði, hagfræði, félagsfræði og sálfræði svo fleiri dæmi séu nefnd.

SJÁ NÁNAR

Umhverfi og samfélag

Í umhverfismálum setjum við okkur metnaðarfull markmið og höfum náð góðum árangri. Við eigum samleið með þeim sem vilja hag umhverfisins sem mestan og teljum að í víðu samhengi sé ál umhverfisvænn málmur, sérstaklega þar sem endurnýtanlegir orkugjafar eru nýttir til framleiðslunnar.

SJÁ NÁNAR

Hafa samband

Við einsetjum okkur að vera í fremstu röð í allri starfsemi okkar og að starfa ávallt í sátt við umhverfi og samfélag. Mikilvægur liður í því er trúverðug upplýsingagjöf og heiðarleg samskipti við okkar hagsmunaaðila.

Hér er hægt að senda okkur athugasemdir, fyrirspurnir og kvartanir. Sjálfsagt er að senda þær nafnlaust en þá getum við ekki veitt endurgjöf.

Við skráum allar athugasemdir sem berast og bregðumst við þeim á viðeigandi hátt.

Sendu okkur línu