24.12.2008

Stuðningur við frumkvöðlakeppnina Gulleggið 2009

Rio Tinto Alcan (Alcan á Íslandi hf.) og Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hafa gert mér sér samning um stuðning við frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2009.

Um er að ræða keppni meðal háskólanemenda í gerð viðskiptaáætlana og er tilhögun hennar samkvæmt fyrirmynd frá MIT háskóla í Bandaríkjunum. Keppnin var haldin í fyrsta sinn í upphafi þessa árs. Þá bárust um 100 gildar viðskiptaáætlanir og stóðu að þeim um 300 einstaklingar. Þátttökurétt í keppninni hafa allir nemendur sem skráðir eru til náms við íslenska háskóla, allir Íslendingar sem stunda háskólanám erlendis auk allra þeirra sem útskrifast hafa með háskólapróf frá íslenskum háskólum undanfarin fimm ár.

Stuðningur Rio Tinto Alcan felst í 500.000 króna fjárframlagi auk þess sem samstarf verður haft við fyrirtækið – eins og aðra styrktaraðila keppninnar – um aðkomu að námskeiðshaldi sem er hluti af keppnisferlinu.

"Við viljum með þessum stuðningi leggja enn meira af mörkum til að efla þá gróskumiklu nýsköpun sem er svo mikilvæg fyrir áframhaldandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs," segir Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi. "Það gleymist stundum að upp úr rekstri álversins í Straumsvík hefur sprottið margvísleg nýsköpun. Má í því sambandi nefna vélsmiðjuna Stími, sem hannað hefur margvíslegan og hátæknilegan búnað í álverið og selur hann nú í álver í öðrum löndum. Með þessu framtaki viljum við hlúa enn frekar að því hugviti sem í Íslendingum býr og freista þess að veita því farsælan farveg."

Innovit er sjálfstætt starfandi nýsköpunar- og frumkvöðlasetur fyrir ungt, kraftmikið og metnaðarfullt fólk með góðar viðskiptahugmyndir. Auk frumkvöðlakeppninnar veitir félagið sérhæfða ráðgjöf og fræðslu um stofnun og rekstur sprotafyrirtækja. Innovit er í meirihlutaeigu hugmyndasmiða félagsins, sem er ungt fólk á aldrinum 25 til 30 ára, en auk þeirra eiga Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hlut í félaginu.

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskrift styrktar- og samstarfssamningsins í Straumsvík. Frá vinstri: Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Innovit, Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir verkefnastjóri Innovit og Ólafur Teitur Guðnason framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi.


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar