11.08.2011

Skoðanakönnun og sameiginleg yfirlýsing

Í daga hafa Rio Tinto Alcan og viðræðunefnd oddvita allra flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar birt skoðanakönnun sem gerð var í sumar á viðhorfum bæjarbúa til álversins, og einnig sameiginlega yfirlýsingu um stöðu viðræðna þessara aðila um framtíð álversins.

Skýrslu um niðurstöður skoðanakönnunarinnar í heild sinni má nálgast með því að smella hér og sækja viðeigandi skjal.

Yfirlýsingin fer hér á eftir:

Sameiginleg yfirlýsing Hafnarfjarðarbæjar og Rio Tinto Alcan

11. ágúst 2011

Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan hafa undanfarna mánuði átt í viðræðum um stöðu fyrirtækisins í hafnfirsku samfélagi í nútíð og framtíð, en bæjarráð óskaði eftir viðræðunum á fundi í október sl. Báðir aðilar leggja áherslu á mikilvægi þess að víðtæk sátt ríki um stöðu fyrirtækisins í samfélaginu og framtíðaráform þess og hyggjast vinna saman að því að svo megi verða.

Mjög góður andi hefur ríkt í viðræðum aðila og snemma í þeim var ákveðið að kanna vilja og viðhorf bæjarbúa til fjölmargra þátta sem snerta starfsemi fyrirtækisins. Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan réðu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera umfangsmikla rannsókn á viðhorfum bæjarbúa til atvinnumála í víðum skilningi, auk viðhorfa til álversins í Straumsvík og framtíðar þess. Félagsvísindastofnun gerði í þessu skyni umfangsmikla símakönnun, auk rýnihóparannsóknar.

Í þessum rannsóknum kom m.a. fram, að þrír af hverjum fjórum íbúum í Hafnarfirði telja jákvætt fyrir bæjarfélagið að hafa álverið starfandi þar og innan við einn af hverjum tíu telur það neikvætt. Sama gildir um viðhorf til 20% framleiðsluaukningar álversins sem nú er unnið að. Helstu ávinningar af veru fyrirtækisins eru taldir þeir að það skapar störf og tekjur fyrir bæjarsjóð.

Þegar spurt er um nokkra ólíka kosti varðandi framtíð álversins segist mjög lítill hluti svarenda vilja draga úr framleiðslu eða hætta henni, rúm 43% vilja láta staðar numið eftir framleiðsluaukninguna og rúm 47% vilja auka framleiðslu enn frekar. Mögulegt hlutfall þeirra sem telja ásættanlegt að auka framleiðslugetuna fer í um 66% að því gefnu að uppfyllt verði ströng skilyrði, ekki síst í umhverfismálum.

Þegar spurt er beint hvernig fólk myndi greiða atkvæði ef kosið yrði um stækkun álversins í dag segjast 59,5% myndu styðja stækkun, þar af sumir að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Rannsóknaskýrslan í heild sinni er aðgengileg á vefjum Hafnarfjarðarbæjar og Alcan á Íslandi: www.hafnarfjordur.is og www.riotintoalcan.is.

Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að áfram ríki mikil sátt um starfsemi fyrirtækisins í hafnfirsku samfélagi og lýsa ríkum vilja til að stuðla sameiginlega að því að svo megi verða. Í ljósi niðurstaðna könnunarinnar er það mat aðila, að ekki sé tímabært að kjósa aftur um mögulega stækkun álversins.

Rio Tinto Alcan telur að unnt sé að hanna stækkunarkost sem tæki betur tillit til sjónarmiða bæjarbúa eins og þau birtast í könnuninni og nyti þar með víðtækari stuðnings.

Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan eru sammála um að ræða áfram um möguleika til eðlilegrar þróunar fyrirtækisins í bænum.

Af hálfu Hafnarfjarðarbæjar hafa oddvitar flokkanna í bæjarstjórn tekið þátt í viðræðunum: Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður bæjarráðs og Valdimar Svavarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Í viðræðuhópi Rio Tinto Alcan voru Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Alexis Segal, yfirmaður samskiptasviðs Rio Tinto Alcan í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku og  Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi, auk þess sem Wolfang Stiller, fyrrverandi stjórnarformaður Alcan á Íslandi tók þátt í þeim í upphafi.


« til baka

Fréttasafn

2024

apríl, febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar