Fólkið

Starfsfólkið í Straumsvík er mikilvægasta auðlind fyrirtækisins. Umhyggja fyrir hvert öðru er eitt af okkar gildum, það er hluti af því hver við erum og hvernig við störfum hverja vakt, hvern dag. Ekkert er mikilvægara en öryggi og velferð starfsfólks, verktaka og samfélagsins.

Í Straumsvík starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur. Um 380 manns með ólíkan bakgrunn starfa hjá fyrirtækinu. Saman skapar starfsfólkið eftirsóknarverðan og umfram allt skemmtilegan vinnustað. Við leggjum mikla áherslu á öryggi og vellíðan starfsfólks sem er grunnurinn að framúrskarandi árangri. Við gætum jafnvægis á milli vinnu og einkalífs með áherslu á fjölskylduvænt starfsumhverfi.

Saman hlúum við að umhverfinu og stuðlum að vistvænum samgöngum með því að bjóða starfsfólki kost á að nýta rútuferðir í upphafi og lok vinnudags. Ýmiss hlunnindi fylgja því að starfa hjá ISAL s.s. vinnufatnaður, baðaðstaða, frítt fæði í mötuneyti, vinnutímastytting og heilsustyrkur. Við kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og leggjum einnig mikla áherslu á starfsmenntamál og jafnrétti á vinnustað. Fyrirtækið hefur hlotið Jafnlaunavottun fyrir árin 2022-2025.

Stefna Rio Tinto á Íslandi er að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem fjölbreytileiki og jafnrétti er haft að leiðarljósi. Stefnan stuðlar að jafnrétti kynja, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Markmið jafnréttis- og jafnlaunastefnu ISAL er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum starfsfólks þannig að reynsla, þekking og hæfileikar þeirra nýtist sem best. Við fylgjum í einu og öllu lögum, reglum og kjarasamningum um jafnrétti og kjör starfsfólks. Stefna þessi nær til og er kynnt öllu starfsfólki. Í jafnréttisáætlun er að finna lýsingu aðgerða sem stuðla að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum.

Við fögnum fjölbreytileikanum og drögum fólk ekki í dilka eftir kyni, aldri, trú, útliti eða neinu því sem greinir okkur að. Fjölbreyttur vinnustaður er góður vinnustaður og þannig viljum við að ISAL sé.  Rio Tinto á Íslandi fékk í desember 2024 staðfesta vottun sem hinseginvænn vinnustaður frá Samtökunum ´78. Fyrirtækið er meðal fyrstu fyrirtækja á Íslandi sem hlýtur þessa vottun. Hinsegin vottunin felur í sér fræðslu fyrir starfsfólk og úttekt á vinnustaðnum þar sem farið hefur verið yfir allar stefnur, aðstöðu starfsfólks, auglýsingar, ráðningaferli og fleira.

Virkt samstarf milli Rio Tinto á Íslandi og Samtakanna ´78 heldur áfram þótt vottunin sé staðfest. Samstarfið felst í því að skapa vettvang fyrir umræðu og upplýsingaöflun sem og miðlun fræðslu, rannsókna og þróunarstarfs í málefnum hinsegin fólks. Báðir aðilar eru sammála um að gera þarf meira til að bæta sýnileika og stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Umræðan síðustu misserin hefur aukinheldur sýnt að allir þurfa að leggjast á eitt til að bregðast við bakslagi í réttindum hinsegin fólks.

Við teljum að koma eigi fram við alla af virðingu. Yfirgangur, ógnun eða hótun af hvers kyns tagi er ekki ásættanleg á okkar vinnustað. Til að vinna að framgangi þessa málaflokks er starfandi eineltisteymi og fagráð um vellíðan á vinnustað.

Öll störf hjá ISAL henta öllum kynjum.

Þessar stefnur styðja við jafnrétti og heilbrigt starfsumhverfi innan ISAL:

Öryggi

Umhyggja fyrir hvert öðru er eitt af okkar gildum, það er hluti af því hver við erum og hvernig við störfum hverja vakt, hvern dag. Ekkert er mikilvægara en öryggi og velferð starfsfólks, verktaka og samfélagsins.

Markmiðið er að skapa skaðlausan vinnustað og er áhættugreiningum beitt markvisst til að svo megi verða ásamt þjálfun starfsfólks til að tryggja örugg vinnubrögð. Áhersla er lögð á fækkun meiðsla, að fyrirbyggja banaslys og að ferlum sé stýrt þannig að ekki verði alvarleg atvik. Okkar sannfæring er að hægt sé að fyrirbyggja öll alvarleg atvik. Við leggjum áherslu á að bera kennsl á, stýra og þar sem hægt er, útrýma hættu. Sýn okkar er að ekkert verk sé svo mikilvægt að fórna megi örygginu við framkvæmd þess. Skaðlaus vinnustaður er forsenda framúrskarandi árangurs.

Kerfisbundið eru borin kennsl á hættur í vinnuumhverfinu og fundnar leiðir til þess koma í veg fyrir eða lágmarka áhættuna. Gerð er áhættugreining fyrir öll vinnusvæði og störf og er hún einnig hluti af undirbúningi allra framkvæmda. Greining og stjórnun áhættuþátta er best tryggð með sameiginlegri nálgun hagaðila. Fulltrúar starfsfólks taka virkan þátt í gerð áhættugreininga og vinnulýsinga og á daglegum fundum er farið yfir helstu áhættur dagsins og stýringu á þeim.

Hjá ISAL er starfandi öryggisnefnd. Nefndin er skipuð fulltrúum framkvæmdastjórnar fyrirtækisins, öryggisvörðum skipuðum af fyrirtækinu og kjörnum öryggistrúnaðarmönnum úr röðum starfsfólks. Öryggisnefndin er samskiptavettvangur þessara aðila í málum er lúta að heilbrigðis- og öryggismálum. Markmið hennar er að hittast fjórum sinnum á ári og fara yfir heilbrigðis- og öryggismál hjá fyrirtækinu, helstu áherslur og fleira tilfallandi.

Öryggi ferla og búnaðar (e. Process safety) er sérstaklega miðað að stórslysavörnum. Þar er rýnt í verkferla og búnað í þeim tilgangi að koma auga á úrbætur til að fyrirbyggja sprengingar, efnaleka, elda og fleira sem gæti valdið banaslysum, valdið rekstrarstöðvun með meiriháttar tjóni á mikilvægum búnaði.

Heilbrigði

ISAL er umhugað um heilsu og líðan starfsfólks og leggur áherslu á að stuðla að heilbrigðu lífi sem veitir lífsfyllingu alla ævi.

Markmiðið er að byggja upp gott og heilsusamlegt vinnuumhverfi sem veldur ekki atvinnutengdum sjúkdómum og jafnframt að hvetja starfsfólk til að taka ábyrgð á eigin heilbrigði, bæði andlegu og líkamlegu. Reglulega eru áhættur metnar, mælingar gerðar í vinnuumhverfi og hugað að vinnuskipulagi. Heilsuefling starfsfólks er einnig mikilvæg sem og að hvetja alla til að taka ábyrgð á eigin heilsu, andlegri og líkamlegri.

Árleg vöktun með tilliti til álags vegna efna, hávaða, titrings auk álags á stoðkerfi er mikilvægt skref í að tryggja heilsusamlegt vinnuumhverfi. Að jafnaði eru framkvæmdar 350 mælingar á mismunandi þáttum í vinnuumhverfinu árlega.

Hið sama gildir um reglubundið heilsufarseftirlit þar sem lögð er áhersla á að fylgjast með áhrifum vinnuumhverfis á heilsu t.d. öndunarfæri og heyrn auk almenns heilbrigðis. Á hverju ári fara að jafnaði 300 starfsmenn í reglubundið heilsufarseftirlit sem framkvæmt er af hjúkrunarfræðingi og trúnaðarlækni á starfstöð ISAL. Engin vinnutengd veikindi eða atvinnusjúkdómar voru tilkynntir á árinu.

Umbætur í vinnuumhverfi eru mikilvægar, sífellt þarf að hafa í huga hvernig hægt er að bæta þannig að draga megi úr álagi.

ISAL leggur áherslu á vellíðan í vinnu og góðan starfsanda. Liður í því er að vera með Fagráð um vellíðan á vinnustað sem vinnur markvisst að því að koma í veg fyrir að einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni geti þrifist hjá fyrirtækinu. Hlutverk fagráðs er að sinna forvörnum, áhættugreiningum og fræðslu. Fagráðið skipa leiðtogar heilbrigðismála, fræðslumála og starfsmannaþjónustu.

​Nánari upplýsingar um heilbrigðis- og öryggismál má finna í samfélagsskýrslum fyrirtækisins.

Fræðsla

Áhersla er lögð á ríkt fræðslustarf hjá álverinu í Straumsvík. Starfsfólk sækir reglulega námskeið sem tengjast störfum sínum, hvort sem það snýr að öryggismálum, umhverfismálum eða stjórnun þeirra farartækja sem þarf til í framleiðslunni. Auk þess eru reglulega haldin námskeið sem snúa að vellíðan, samskiptum og fjölbreytileika.

Stærsta fræðsluverkefnið í Straumsvík er Stóriðjuskólinn sem hefur sannað gildi sitt frá stofnun hans. Skólinn hefur skilað aukinni hæfni, betri samskiptum og meiri virkni á vinnustaðnum. Hann eykur menntunar- og starfsþróunarmöguleika almenns starfsfólks, brýtur niður hindranir milli deilda og styrkir tengsl og samskipti innan fyrirtækisins. Sterk samvinna og liðsheild eru sérstaklega mikilvæg í flóknu framleiðsluumhverfi, þar sem áskoranir eru reglulegar og samhæfing lykill að árangri.

Skólinn veitir bæði mæl­anlegan árangur og dýpri innsýn í reksturinn, bætir upplýsingamiðlun og stuðlar að samhentu teymi sem deilir sameiginlegum markmiðum. Námið veitir einingar í íslenska skólakerfinu og er kennt af sérfræðingum ISAL og utanaðkomandi kennurum.

Stóriðjuskóli ISAL

Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1998 og gegnt lykilhlutverki í árangri og fræðslumenningu ISAL. Meginmarkmið skólans er að efla fagþekkingu og öryggi starfsfólksins, auka starfsánægju og skapa raunverulega möguleika til starfsmenntunar og þróunar í starfi. Skólinn stuðlar að því að gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari, auðvelda innleiðingu breytinga og efla samkeppnishæfni fyrirtækisins í ört vaxandi og tæknivæddu umhverfi.

Álverið er hátæknifyrirtæki þar sem flókinn og nákvæmur tækjabúnaður stýrir öllu framleiðsluferlinu. Stóriðjuskólinn er í því samhengi lykilvettvangur fyrir þekkingaröflun og hæfniþróun sem nýtist beint í að bæta framleiðsluferla, gæði og afköst. Þessi fjárfesting í starfsfólkinu hefur skilað sér margfalt til baka í aukinni hæfni, virkni og áhuga á starfi.

Grunnnám er ætlað ófaglærðu starfsfólki með minnst 45 mánaða starfsreynslu. Námið tekur þrjár annir og felur í sér 300 kennslustundir með áherslu á hagnýta færni og fræðilegan skilning á framleiðsluferlinu.

Framhaldsnám er fyrir þá sem lokið hafa grunnnámi eða eru iðnaðarmenn. Það spannar einnig þrjár annir og inniheldur 385 kennslustundir. Markmiðið er að efla sjálfstraust og leiðtogahæfni, dýpka þekkingu á framleiðsluferlum og undirbúa starfsfólk undir forystuhlutverk. Námið stuðlar að aukinni teymisvinnu og samstarfi milli deilda með verkefnum sem krefjast þverfaglegrar nálgunar.