Í Straumsvík starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur. Um 380 manns með ólíkan bakgrunn starfa hjá fyrirtækinu. Saman skapar starfsfólkið eftirsóknarverðan og umfram allt skemmtilegan vinnustað. Við leggjum mikla áherslu á öryggi og vellíðan starfsfólks sem er grunnurinn að framúrskarandi árangri. Við gætum jafnvægis á milli vinnu og einkalífs með áherslu á fjölskylduvænt starfsumhverfi.
Saman hlúum við að umhverfinu og stuðlum að vistvænum samgöngum með því að bjóða starfsfólki kost á að nýta rútuferðir í upphafi og lok vinnudags. Ýmiss hlunnindi fylgja því að starfa hjá ISAL s.s. vinnufatnaður, baðaðstaða, frítt fæði í mötuneyti, vinnutímastytting og heilsustyrkur. Við kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og leggjum einnig mikla áherslu á starfsmenntamál og jafnrétti á vinnustað. Fyrirtækið hefur hlotið Jafnlaunavottun fyrir árin 2022-2025.
Stefna Rio Tinto á Íslandi er að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem fjölbreytileiki og jafnrétti er haft að leiðarljósi. Stefnan stuðlar að jafnrétti kynja, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Markmið jafnréttis- og jafnlaunastefnu ISAL er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum starfsfólks þannig að reynsla, þekking og hæfileikar þeirra nýtist sem best. Við fylgjum í einu og öllu lögum, reglum og kjarasamningum um jafnrétti og kjör starfsfólks. Stefna þessi nær til og er kynnt öllu starfsfólki. Í jafnréttisáætlun er að finna lýsingu aðgerða sem stuðla að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum.
Við fögnum fjölbreytileikanum og drögum fólk ekki í dilka eftir kyni, aldri, trú, útliti eða neinu því sem greinir okkur að. Fjölbreyttur vinnustaður er góður vinnustaður og þannig viljum við að ISAL sé. Rio Tinto á Íslandi fékk í desember 2024 staðfesta vottun sem hinseginvænn vinnustaður frá Samtökunum ´78. Fyrirtækið er meðal fyrstu fyrirtækja á Íslandi sem hlýtur þessa vottun. Hinsegin vottunin felur í sér fræðslu fyrir starfsfólk og úttekt á vinnustaðnum þar sem farið hefur verið yfir allar stefnur, aðstöðu starfsfólks, auglýsingar, ráðningaferli og fleira.
Virkt samstarf milli Rio Tinto á Íslandi og Samtakanna ´78 heldur áfram þótt vottunin sé staðfest. Samstarfið felst í því að skapa vettvang fyrir umræðu og upplýsingaöflun sem og miðlun fræðslu, rannsókna og þróunarstarfs í málefnum hinsegin fólks. Báðir aðilar eru sammála um að gera þarf meira til að bæta sýnileika og stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Umræðan síðustu misserin hefur aukinheldur sýnt að allir þurfa að leggjast á eitt til að bregðast við bakslagi í réttindum hinsegin fólks.
Við teljum að koma eigi fram við alla af virðingu. Yfirgangur, ógnun eða hótun af hvers kyns tagi er ekki ásættanleg á okkar vinnustað. Til að vinna að framgangi þessa málaflokks er starfandi eineltisteymi og fagráð um vellíðan á vinnustað.
Öll störf hjá ISAL henta öllum kynjum.
Þessar stefnur styðja við jafnrétti og heilbrigt starfsumhverfi innan ISAL: