Rannveig Rist fær gullmerki Samtaka atvinnulífsins

6 okt. 2026

Rannveig Rist, fyrrverandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, var sæmd fyrsta gullmerki Samtaka atvinnulífsins fyrir einstakt framlag til íslensks atvinnulífs og samtakanna. Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, afhenti henni merkið. Í ávarpi sínu sagði Jón Ólafur að Rannveig hefði sett sterkan svip á íslenskt atvinnulíf um áratugaskeið. Hún hefði leitt eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins í gegnum miklar breytingar og krefjandi tíma.

„Hún hefur verið óþreytandi talsmaður menntunar, þekkingar og ábyrgðar í atvinnulífinu og rutt konum braut inn á svið þar sem þær höfðu áður verið fáar,“ sagði Jón Ólafur.

Hann þakkaði jafnframt framlag Rannveigar í stjórn og framkvæmdastjórn SA, þar sem reynsla hennar, festa og skýr sýn á langtímahagsmuni atvinnulífsins hefðu verið samtökunum mikilvæg.

Rannveig flutti einnig ávarp á ársfundinum. Í frétt á vef SA má horfa á ávarpið í heild eða lesa.

Starfsfólk álversins í Straumsvík óskar Rannveigu innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Sjá nánar á vef Samtaka atvinnulífsins