Íþróttastyrkir til ungmenna í Hafnarfirði

28 ágú. 2024

Afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) fór fram í Straumsvík í vikunni. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH afhentu styrkina.

Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 12 milljónir króna árið 2024 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttastarfs barna í Hafnarfirði en úthlutað er tvisvar á ári. Að þessu sinni var úthlutað 13,2 milljónum króna sem fer til 5419 barna í Hafnarfirði sem stunda íþróttir hjá 13 félögum í bænum.

Við erum stolt af því að vera bakhjarl íþróttastarfs barna og unglinga í Hafnarfirði.

Myndin er frá úthlutuninni af fulltrúum félaganna ásamt Rannveigu Rist, bæjarstjóra Hafnarfjarðar og stjórnarfólki ÍBH.