Neyðarkall og styrkur til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
30 okt. 2024
Neyðarkallinn er sem fyrr mættur í Straumsvík. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, tók við Neyðarkallinum en við vorum líka að veita Björgunarsveit Hafnarfjarðar myndarlegan styrk til að flýta fyrir kaupum á nýjum björgunarbát. Styrkurinn var handsalaður um leið og fyrirtækið fékk afhentan fyrsta stóra Neyðarkall ársins. Styrkurinn mun flýta kaupum á nýjum björgunarbát og þannig gera björgunarsveitinni kleift að efla viðbragð sitt við leitar- og björgunarverkefnum á sjó.