Hvatningarverðlaun Álklasans fyrir lokaverkefni í Stóriðjuskólanum

14 mar. 2025

Lokaverkefni úr Stóriðjuskóla ISAL hlaut viðurkenningu og verðlaun á árlegu Nýsköpunarmóti Álklasans sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík þann 13.mars 2025. Eyrún Ragnarsdóttir og Guðmundur Rafn Jónsson kynntu þar verkefni sem þau unnu ásamt Bryndísi Blöndal. Öll eru þau starfsfólk álversins í Straumsvík og verkefnið var lokaverkefni þeirra í framhaldsnámi við Stóriðjuskóla ISAL. Í lokaverkefni námsins takast nemendur á við að koma auga á og leysa raunveruleg verkefni í framleiðsluferlinu í Straumsvík. Verkefnið og rannsókn þeirra ber nafnið "Minnkun tafa á aðalsög Steypuskála" og hefur þegar skilað sér í hagræðingu í rekstri. Verðskulduð viðurkenning á vel unnu og gagnlegu verkefni.