Rio Tinto á Íslandi fékk sérstaka öryggisviðurkenningu
Álverið í Straumsvík fékk nýlega sérstaka viðurkenningu þegar öryggisverðlaun Rio Tinto (Rio Tinto Safety Awards) voru tilkynnt. Starfsfólkið í Straumsvík á hvert og eitt sinn þátt í því að þessi góði árangur hefur náðst, enda eru heilbrigði, umhverfi og öryggi alltaf höfð að leiðarljósi við dagleg störf. Rio Tinto leggur mikla áherslu á öryggi starfsfólks en fyrirtækið er með starfstöðvar og ólíka framleiðslu og vinnslu víða um heim. Öryggi fólks er alltaf í mesta forgangi og það hefur verið skýr stefna okkar í Straumsvík um áratugaskeið. Haft hefur verið á orði að öryggismenning hafi verið innleidd í íslenskan iðnað með tilkomu álversins í Straumsvík sem hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að öryggismálum. Starfsfólk miðlar óspart af reynslu sinni bæði inn á við til samstarfsfólks sem og til annarra fyrirtækja og nemenda í ýmsum námsgreinum. Öryggi kemur okkur öllum við og skiptir okkur öll máli því öll viljum við koma heil heim að loknum vinnudegi - sama hvar við störfum.