Mín framtíð

18 mar. 2025

Vélvirkjar og vélfræðingar frá álverinu í Straumsvík tóku þátt í Mín framtíð sem haldin var í Laugardalshöll dagana 14-16.mars 2025. Hópurinn var í samvinnu við Iðuna fræðslusetur þar sem nám í vélvirkjun var kynnt meðal fleiri iðngreina. Um 9.000 grunnskólanemendur heimsóttu Laugardalshöllina auk þess sem opið var fyrir gesti og gangandi á laugardeginum. Okkar fólk stóð sig með stakri prýði og hefur eflaust sáð mikilvægum fræjum í hugum unga fólksins um náms- og starfsmöguleika á sviði vélvirkjunar.

Álverið í Straumsvík hefur á að skipa mörgu iðn- og tæknimenntuðu starfsfólki, sem er alveg nauðsynlegt til þess að tryggja samfelldan og öruggan rekstur. Viðburðurinn er því ekki síður gott tækifæri fyrir álverið að kynna starfsemi sína sem býður upp fjölmörg tækifæri fyrir fólk með iðnaðarmenntun. Frábært framtak að bjóða upp á kynningar af þessu tagi þar sem grunnskólanemendum, kennurum og fjölskyldum þeirra gefst kostur á að læra meira um fjölbreytta möguleika í námi og starfi.