Haustferð fyrrum starfsfólks

31 ágú. 2026

Árlega býður Rio Tinto á Íslandi fyrrum starfsfólki sínu, sem hætt hefur störfum sökum aldurs, í haustferð. Ferðin er alltaf vel sótt og að þessu sinni mættu rúmlega 150 fyrrum starfsmenn. Þessi dagur er sannarlega einn af uppáhaldsdögum okkar í Straumsvík. Okkur þykir mikilvægt að halda góðum tengslum við dygga fyrrum starfsmenn, en í hópi þeirra eru mörg sem tóku þátt í uppbyggingu fyrirtækisins frá fyrstu árum þess.

Að þessu sinni var farið til Grindavíkur þar sem hópurinn fékk góðar móttökur. Hópurinn fékk djúpa innsýn inn í það sem samfélagið þar hefur gengið í gegnum á síðustu árum og þau verkefni sem nú eru í gangi við að endurreisn og uppbyggingu. Eftir fræðslu og skoðunarferð um bæinn fór hópurinn í hádegisverð á Bryggjunni þar sem gestir áttu saman góða samverustund.

Við þökkum Grindvíkingum fyrir frábærar móttökur.