Rannveig Rist á Iðnþingi
7 mar. 2025
Rannveig Rist tók þátt í Iðnþingi sem fór fram í Hörpu 6.mars 2025. Þar áttu hún og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samtal um sögu og áhrif álversins í Straumsvík á íslenskt samfélag og efnahag. Upphaf álframleiðslu í Straumsvík hafði mikil og góð áhrif á samfélagið. Má þar helst nefna uppbyggingu raforkukerfis og þá staðreynd að til varð ný stoð í íslensku atvinnulífi eins og sjá má skýrt á hagtölum frá þessum tíma. Enn í dag er álframleiðsla ein af undirstöðum í íslensku atvinnulífi og íslenskt ál mikilvæg útflutningsvara fyrir Íslendinga.