Útskrift framhaldsnema við Stóriðjuskóla ISAL

15 jan. 2025

Fimmtán nemendur útskrifuðust úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla ISAL sem starfræktur hefur verið í Straumsvík frá árinu 1998. Alls hafa 65 nemendur útskrifast úr framhaldsnáminu sem hefur verið boðið upp á frá árinu 2004. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, var viðstödd afhöfnina og ávarpaði útskriftarhópinn. Markmið námsins er að nemendur aukist dýpri skilning á framleiðsluferlinu, auki við þekkingu sína, öðlist færni til að takast á við verkefni þar sem samvinna þvert á deildir fyrirtækisins er lykilatriði, þjálfi sig í samskiptafærni og fleiru sem leggur grunn að góðum samskiptum í fyrirtækinu og bætir árangur starfsfólks sem einstaklinga sem og fyrirtækisins í heild. Með námi við Stóriðjuskólann eykur starfsfólk við þekkingu sína, sýnir metnað fyrir hönd fyrirtækisins og sjálfs sín og eykur möguleika sína á starfsþróun og framgangi.

Nemendum eru færðar innilegar hamingjuóskir með áfangann.