Útskrift Stóriðjuskólans

20 apr. 2026

Sautján nemendur, sem jafnframt er starfsfólk álversins í Straumsvík, útskrifuðust úr grunnnámi Stóriðjuskólans þann 14. apríl við hátíðlega athöfn. Alls hafa nú 285 einstaklingar lokið grunnnámi að útskriftahópnum meðtöldum, en þessi hópur var 22.hópurinn sem útskrifast úr grunnnámi. Verðlaun voru veitt fyrir bestan námsárangur og ástundun. Útskriftanemarnir, sem hljóta að loknu námi titilinn Stóriðjugreinar, koma úr ýmsum deildum innan fyrirtækisins.

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, var viðstödd útskriftina og ávarpaði útskriftarnema. Rannveig Rist, fráfarandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, flutti einnig ávarp, en skólinn var stofnaður að hennar frumkvæði á fyrstu árum hennar sem forstjóri.

Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur í Straumsvík frá árinu 1998. Markmið skólans er að auka verðmætasköpun og samkeppnisfærni, auðvelda innleiðingu breytinga og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari. Námið er hugsað til að efla þekkingu starfsólks, öryggisvitund og starfsánægju og einnig auka möguleika á starfsmenntun og þróun í starfi.