Hinsegin vottaður vinnustaður

20 des. 2024

Eftir ríflega árs undirbúning, fræðslu og úttektir fékk Rio Tinto á Íslandi staðfesta vottun sem hinseginvænn vinnustaður frá Samtökunum ´78 í desember 2024. Fyrirtækið er meðal fyrstu fyrirtækja á Íslandi sem hlýtur þessa vottun. Hinsegin vottunin felur í sér fræðslu fyrir starfsfólk og úttekt á vinnustaðnum þar sem farið hefur verið yfir allar stefnur, aðstöðu starfsfólks, auglýsingar, ráðningaferli og fleira. Virkt samstarf milli Rio Tinto á Íslandi og Samtakanna ´78 heldur áfram þótt vottunin sé staðfest. Samstarfið felst í því að skapa vettvang fyrir umræðu og upplýsingaöflun sem og miðlun fræðslu, rannsókna og þróunarstarfs í málefnum hinsegin fólks. Báðir aðilar eru sammála um að gera þarf meira til að bæta sýnileika og stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Umræðan síðustu misserin hefur aukinheldur sýnt að allir þurfa að leggjast á eitt til að bregðast við bakslagi í réttindum hinsegin fólks.