Álverið í Straumsvík leggur áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif rekstursins eins og kostur er. Áhættugreiningum er beitt markvisst og vel er fylgst með losun frá allri starfseminni. Loftslagsmálin skipta okkur miklu máli og stefnum við á kolefnishlutleysi árið 2040. Fylgst er með áhrifum starfseminnar á nánasta umhverfi bæði með loftgæðastöð og gróðursýnum ásamt reglulegri vöktun á áhrifum starfseminnar á lífríki sjávar.
Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi fyrir ISAL og er það aðgengilegt á vefsíðu stofnunarinnar. Þar er einnig að finna mæli- og vöktunaráætlun ISAL sem samþykktar eru af Umhverfisstofnun.
Í samfélagsskýrslu fyrirtækisins er að finna helstu upplýsingar um umhverfismál.
Niðurstöður vöktunar eru aðgengilegar á hér auk þess sem loftgæði má sjá í rauntíma á loftgæði.is
Eftirlit og mælingar
Stöðugt eftirlit er með mikilvægum umhverfisþáttum svo sem útblæstri og frárennsli. Umhverfisvöktun fer fram í nágrenni Straumsvíkur og felst meðal annars í loftgæðamælingum, sýnatöku af gróðri og rannsóknum á áhrifum fyrirtækisins í sjó.
Lofslagsmál er eitt af forgangsmálunum og stefnum við á kolefnishlutleysi árið 2040. Rio Tinto á Íslandi hefur sett aðgerðaáætlun í lofslagsmálum til 2040. Aðgerðaáætlunin horfir annars vegar til þeirrar losunar sem á sér stað innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir og hins vegar þá losun sem fellur til undir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda.
Kerskálar eru helsta uppspretta mengandi efna í útblæstri en þau eru flúoríð, ryk og brennisteinstvíoxíð auk gróðurhúsalofttegunda. Útblástur flúoríðs og ryks er mældur stöðugt bæði á kerskálaþökum og í þurrhreinsistöðvum. Einnig er símæling á ryki frá ofnum steypuskála, löndunarbúnaði og öðrum síuhúsum. Mælingarnar eru gerðar samkvæmt mæliáætlun sem samþykkt er af Umhverfisstofnun sem má nálgast á vef stofnunarinnar.
Mikil áhersla er lögð á að halda losun í lágmarki og eru mælingarnar notaðar markvisst og niðurstöðurnar rýndar reglulega. Stýring framleiðsluferla, fyrirbyggjandi viðhald ásamt fræðslu og þjálfun starfsfólks gegna lykilhlutverki í að lágmarka losunina.
Loftgæði eru vöktuð á Hvaleyrarholti og í Lónakoti. Á báðum loftgæðastöðvum er mælt brennisteinstvíoxíð (SO2) en auk þess er flúoríð og brennisteinsvetni (H2S) mælt á Hvaleyraholti. Auk loftgæðamælinga eru tekin sýni af gróðri (barrnálum, laufi og grasi) og flúorinnihald mælt, en flúor getur haft skaðleg áhrif á gróður og grasbíta.
Á fimm ára fresti er fylgst með áhrifum rekstursins á lífríki sjávar og fór slík rannsókn fram árið 2023. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum sá um rannsóknina á lágu niðurstöður fyrir í september 2024.
Flúor er mældur í gróðri á skilgreindum stöðum í nágrenni álversins og er viðmiðunarsýni tekið í Skorradal. Mælt er flúorinnihald í grasi, laufi og barri.
Kolefnislosun
ISAL stefnir á kolefnishlutleysi árið 2040 en það snýr að allri beinni losun fyrirtækisins (umfang 1). Til að ná kolefnishlutleysi leggjum við áherslu á að útrýma losun eða fanga hana eins mikið og reynist tæknilega hagkvæmt. Þeirri losun sem eftir stendur innan umfangs 1 verður mætt með vottuðum mótvægisaðgerðum. Við vinnum jafnframt að því að minnka óbeina losun starfseminnar í samstarfi við móðurfélagið og birgja en um 95% af losun í umfangi 3 er vegna framleiðslu og flutnings lykilhráefna.
Losun gróðurhúsalofttegunda er einn af mikilvægustu umhverfisþáttum ISAL. Losun frá starfsemi ISAL er skipt í tvo hluta, annars vegar það sem fellur undir viðskiptakerfi Evrópu með losunarheimildir (ETS) og hins vegar það sem er utan þess og fellur undir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda (sjá töflu yfir grænt bókhald). Losun gróðurhúsalofttegunda frá framleiðsluferlum fellur undir viðskiptakerfi Evrópu með losunarheimildir en önnur losun t.d. losun frá fartækjum, kælimiðlum og úrgangi fellur undir skuldbindingar íslenskra stjórnvalda.
Frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda frá framleiðslunni dregist saman um 44% þrátt fyrir að framleiðslan hafi meira en tvöfaldast. Þetta skýrist að mestu af því að tekist hefur að draga mjög úr losun flúorkolefna (PFC). Framleiðsla á áli þarf mikla orku og hefur það því mikla þýðingu að ISAL nýtir raforku sem framleidd er með vatnsafli en sú orkuvinnsla veldur hverfandi losun gróðurhúsalofttegunda samanborið við kol eða olíu.
Loftgæði eru vöktuð á Hvaleyrarholti og í Lónakoti. Á báðum loftgæðastöðvum er mælt brennisteinstvíoxíð (SO2) en auk þess er flúoríð og brennisteinsvetni (H2S) mælt á Hvaleyraholti. Auk loftgæðamælinga eru tekin sýni af gróðri (barrnálum, laufi og grasi) og flúorinnihald mælt, en flúor getur haft skaðleg áhrif á gróður og grasbíta.
Á fimm ára fresti er fylgst með áhrifum rekstursins á lífríki sjávar og fór slík rannsókn fram árið 2023. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum sá um rannsóknina á lágu niðurstöður fyrir í september 2024.
Flúor er mældur í gróðri á skilgreindum stöðum í nágrenni álversins og er viðmiðunarsýni tekið í Skorradal. Mælt er flúorinnihald í grasi, laufi og barri.
Heimsóknir til Straumsvíkur
Við viljum gjarnan og leggum áherslu á að taka á móti nemendahópum og faghópum sem vilja heimsækja álverið og kynna sér starfsemina þar. Heimsóknir í álverið eru takmarkaðar við 40 manns að hámarki og fara fram á dagvinnutíma, virka daga milli klukkan 8.00 og 16.00.
Allir hópar sem leggja leið sína til Straumsvíkur fá kynningu á þeim öryggisreglum sem gilda á svæðinu. Gestir fá nauðsynlegar persónuhlífar en þurfa að mæta í síðbuxum og lokuðum skóm.
Beiðni um heimsókn:
Því miður er okkur eins og er ekki fært að taka á móti hópum á vegum ferðaskrifstofa, innlendra sem erlendra, eða gestum á eigin vegum.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin
Bjartsýnisverðlaunin voru afhent fyrst árið 1981 og hétu þá Bjartsýnisverðlaun Brøste. Frá árinu 2000 fengu þau nafnið Íslensku bjartsýnisverðlaunin og frá þeim sama tíma hefur álverið í Straumsvík, Rio Tinto á Íslandi, verið bakhjarl verðlaunanna. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru viðurkenning sem veitt er einstaklingi sem hefursýnt einstaka bjartsýni, eldmóð og framtíðarsýn í verkum sínum. Markmiðið með verðlaununum er að draga fram og heiðra þá sem sýna í verki að bjartsýni er ekki aðeins tilfinning heldur hreyfiafl. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning til þeirra sem láta drauma sína rætast, horfa til framtíðar með jákvæðum huga og hafa áhrif á umhverfi sitt með krafti og jákvæðni.
Bjartsýnisverðlaunin eru í senn viðurkenning á þeim árangri sem listamaðurinn hefur þegar náð, metnaði hans og elju en um leið ekki síður hvatning til áframahaldandi góðra verka á sviði menningar og lista sem bæði auðga samfélagið og hreyfa við fólki.
Verðlaunin eru veitt árlega og dómnefnd velur úr hópi tilnefninga sem berast frá almenningi. Litið er til nýsköpunar, áhrifamáttar, samfélagslegs gildis og þess hvernig viðkomandi vekur von og innblástur hjá öðrum.
Íþróttastarf í Hafnarfirði
ISAL er stolt af samstarfi sínu við íþróttafélögin í Hafnarfirði. Fyrirtækið styður myndarlega við barna- og unglingastarf félaganna og sérstakur samningur við Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH), sem er samstarfsvettvangur allra íþróttafélaga í bænum, tryggir jafnræði milli félaganna og stuðlar að aukinni fagmennsku.
Samkvæmt gildandi samningi greiðir ISAL 11 milljónir króna til ÍBH, sem skiptir upphæðinni milli aðildarfélaga sinna. Miðað er við að 60% af heildarupphæð samningsins skiptist eftir fjölda iðkenda 17 ára og yngri en 40% er skipt samkvæmt menntunarstigi þeirra sem sinna þjálfun og fræðslu á vegum félaganna. Þá er horft til ýmissa námskeiða sem tengjast íþróttaþjálfun; menntunarstiga ÍSÍ og sérsambanda innan íþróttahreyfingarinnar, íþróttakennaramenntunar, þjálfaranáms á háskólastigi o.fl.
Í samningnum er einnig að finna sérstakt ákvæði sem skapar hvata fyrir aðildarfélög ÍBH að sækja sér sérstaka gæðavottun fyrir starfsemi sína og tryggja þar með framgang mennta- og jafnréttismála með utanaðkomandi vottun. Auk þess nær vottunin yfir ýmsa aðra gæðaþætti í starfsemi íþróttafélaga og stuðlar að betri rekstri og árangri.
Með þessu er ætlunin að hvetja til faglegra vinnubragða á sem flestum sviðum barna- og unglingastarfsins og tryggja þannig ánægju iðkendanna og aðstandenda þeirra.