Heimsóknir til Straumsvíkur
Við leggum áherslu á að taka á móti nemendahópum og faghópum sem vilja heimsækja álverið og kynna sér starfsemina þar.
Heimsóknir í álverið eru takmarkaðar við 40 manns að hámarki og fara fram á dagvinnutíma, milli kl. 8.00 - 16.00 á virkum dögum.
Allir hópar sem leggja leið sína til Straumsvíkur fá kynningu á öryggisreglum sem gilda á svæðinu, fá nauðsynlegar persónuhlífar en þurfa að mæta í síðbuxum og lokuðum skóm.
Beiðni um heimsókn:
Því miður er okkur eins og er ekki fært að taka á móti hópum á vegum ferðaskrifstofa, innlendra sem erlendra, eða gestum á eigin vegum.
Íþróttastarf í Hafnarfirði
ISAL er stolt af samstarfi sínu við íþróttafélögin í Hafnarfirði. Fyrirtækið styður myndarlega við barna- og unglingastarf félaganna og sérstakur samningur við Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH), sem er samstarfsvettvangur allra íþróttafélaga í bænum, tryggir jafnræði milli félaganna og stuðlar að aukinni fagmennsku.
Samkvæmt gildandi samningi greiðir ISAL 11 milljónir króna til ÍBH, sem skiptir upphæðinni milli aðildarfélaga sinna. Miðað er við að 60% af heildarupphæð samningsins skiptist eftir fjölda iðkenda 17 ára og yngri en 40% er skipt samkvæmt menntunarstigi þeirra sem sinna þjálfun og fræðslu á vegum félaganna. Þá er horft til ýmissa námskeiða sem tengjast íþróttaþjálfun; menntunarstiga ÍSÍ og sérsambanda innan íþróttahreyfingarinnar, íþróttakennaramenntunar, þjálfaranáms á háskólastigi o.fl.
Í samningnum er einnig að finna sérstakt ákvæði sem skapar hvata fyrir aðildarfélög ÍBH að sækja sér sérstaka gæðavottun fyrir starfsemi sína og tryggja þar með framgang mennta- og jafnréttismála með utanaðkomandi vottun. Auk þess nær vottunin yfir ýmsa aðra gæðaþætti í starfsemi íþróttafélaga og stuðlar að betri rekstri og árangri.
Með þessu er ætlunin að hvetja til faglegra vinnubragða á sem flestum sviðum barna- og unglingastarfsins og tryggja þannig ánægju iðkendanna og aðstandenda þeirra.
Siðareglur
Rio Tinto virðir og styður velsæld og mannréttindi alls fólks í þeim samfélögum sem við búum í og vinnum, starfsfólks okkar og annarra. Við leitum tækifæra til að styðja við og hafa jákvæð áhrif á mannréttindi. Það þýðir að við leggjum áherslu á fólk og réttindi þess í allri ákvarðanatöku okkar.
Við væntum þess að samstarfsaðilar okkar og fyrirtæki sem við eigum í samstarfi við virði alþjóðlega viðurkennd mannréttindi. Við væntum þess einnig að birgjar okkar og verktakar virði alþjóðlega viðurkennd mannréttindi.
ISAL framkvæmir sérstakt áhættumat og greiningu á því hvernig starfsemi okkar getur haft áhrif á mannréttindi, samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum mælikvörðum. Áhættumatið er yfirfarið og endurmetið á hverju ári með það fyrir augum að styðja við áherslur í mannréttindamálum.
Nánari upplýsingar um stefnu og áherslur Rio Tinto í mannréttindamálum má finna á vefsíðu móðurfélagsins hér. Siðareglur fyrirtækisins, Þannig vinnum við, taka einnig til mannréttinda og hvernig við hegðum okkur í samræmi við gildi.

Hér má finna siðareglur Rio Tinto á Íslandi