Sumarstörf 2016

Umsóknarfrestur vegna sumarstarfa 2016 rennur út mánudaginn 28. febrúar og verður ekki tekið á móti fleiri umsóknum. Úrvinnsla hefst fimmtudaginn 26. febrúar og eru umsækjendur beðnir um að fylgjast með pósthólfum sínum þar sem boðað verður í viðtöl með tölvupósti. Stefnt er á að ljúka ráðningarferlinu 15. apríl. Ef svar berst ekki fyrir þann tíma er ekki hægt að búast við ráðningu.

Vönduð umsókn
Þar sem haldið er utan um umsóknir í tölvukerfi fyrirtækisins er nauðsynlegt að allir reitir séu útfylltir eins nákvæmlega og kostur er því upplýsingarnar eru notaðar til að bera saman hæfni og menntun umsækjenda við kröfur í laus störf. Vinsamlega athugið að hægt er að setja ferilskrá undir viðhengi en lögð er áhersla á að ekki sé vísað í ferilskrá í reitum sem þarf að fylla út.

Vel útfyllt umsókn eykur möguleika umsækjenda á starfi.

Gilt ökuskírteini er nauðsynlegt fyrir ráðningu í flest störf hjá ISAL.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu í birgðahald, innkaup, hafnarvinnu og öryggisvörslu.
Í sum störf er einnig krafist upplýsingar frá CreditInfo.

Smelltu hér til að sækja um starf. Gættu þess að velja "Sumarstörf 2016".

Við þökkum kærlega fyrir sýndan áhuga.

Starfsmannaþjónusta Rio Tinto Alcan á Íslandi hf.

 ------------------------------------------------------------------------------------------------

Nánari upplýsingar vegna sumarstarfa 2016

Áríðandi atriði

  • Ef um nánari spurningar er að ræða sem ekki er hægt að fá svar við hér að neðan, er velkomið að senda fyrirspurnir á eftirfarandi netföng: soleye@riotinto.com eða sigridurj@riotinto.com.
  • Vinnustaðurinn er reyklaus.
  • Umsækjandi þarf að fylgjast með tölvupósti sínum þar sem boðað er í viðtöl í gegnum hann. 
  • Viðtalið fer fram á aðalskrifstofu ISAL í Straumsvík.
  • Ekki er unnt að veita sumarfrí á ráðningartíma. Auk þess eru flest störfin vaktavinna og því unnið alla daga, kvöld og nætur. Sem dæmi má taka  17. júní, verslunarmannahelgi, Menningarnótt o.fl.
  • Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára eða verða það á árinu.
  • Í þau störf sem krafist er lyftararéttinda, greiðir ISAL námskeiðskostnað. Um er að ræða skyldumætingu.
    Á sumum vinnustöðum er krafist sakavottorðs.
  • Þeir sem koma til greina í störfin þurfa að gangast undir læknisskoðun og  áfengis- og vímuefnapróf áður en störf hefjast.
    ------------------------------------------------------------------------------------------------

------------------------------------------------------------------------------------------------

Nánari upplýsingar um sumarstörf

Vinnusvæði

Á hverju vori eru ráðnir um 100 starfsmenn við sumarafleysingar í eftirtaldar deildir:

  • Kerskála
  • Steypuskála
  • Skautsmiðju
  • Mötuneyti
  • Efnisvinnslu
  • Birgðahald og innkaup
  • Verkstæði
  • Hafnarvinnu
  • Rannsóknastofu

 

Vinnufyrirkomulag

Flestir eru ráðnir í vaktavinnu sem er aðallega þrískipt eða tvískipt.

  • Þrískiptar vaktir (kerskálar og steypuskáli)
    • Unnar eru 6 átta tíma vaktir á 5 sólarhringum sem skiptast í 2 næturvaktir (00:00-08:00), 2 kvöldvaktir (16:00-24:00) og 2 dagvaktir (08:00-16:00), (samtals 48 klst.). Á eftir hverri vaktasyrpu er 5 daga vaktafrí.
  • Tvískiptar vaktir A (skautsmiðja og efnisvinnsla)
    • Unnar eru 6 átta tíma vaktir á 6 sólarhringum sem skiptast í 3 dagvaktir (08:00-16:00) og 3 kvöldvaktir (16:00-24:00), (samtals 48 klst.). Á eftir hverri vaktasyrpu er 4 daga vaktafrí. Þegar skipt er af dagvakt yfir á kvöldvakt eru unnar 16 klst. í einni lotu (08:00-24:00).
  • Tvískiptar vaktir B (rannsóknastofa og mötuneyti)
    • Unnar eru 6 átta tíma vaktir á 6 sólarhringum sem skiptast í 3 kvöldvaktir (14:00-22:00) og 3 dagvaktir (08:00-16:00), (samtals 48 klst.). Á eftir hverri vaktasyrpu er 3 daga vaktafrí.
  • Dagvinna (mötuneyti, aðalverkstæði, birgðahald, kerskálar, flutninga- og hafnarvinna o.fl.)
    • Unnið er frá 08:00-16:00, virka daga.


Launakjör

Laun eru greidd samkvæmt „Kjarasamningi um kaup og kjör starfsmanna við álverið í Straumsvík“. Byrjunarlaun eru um það bil:

  • Þrískiptar vaktir
    • Um kr. 376.000/mánuði (með vaktaálagi).
  • Tvískiptar vaktir A
    • Um kr. 350.000/mánuði (með vaktaálagi).
  • Tvískiptar vaktir B
    • Um kr. 343.000/mánuði (með vaktaálagi).
  • Dagvinna
    • Um kr. 294.000/mánuði.

Hlunnindi

Fyrirtækið leggur starfsmönnum til, þeim að kostnaðarlausu, vinnuföt, fæði og ferðir til og frá Straumsvík með rútum sem ganga um höfuðborgarsvæðið.

Vinnuföt starfsmanna eru þvegin í þvottahúsi í Straumsvík.

Baðaðstaða er á staðnum sem hægt er að nýta sér í vinnulok

Nýliðafræðsla og námskeið

Á fyrstu dögunum þarf nýr starfsmaður að sækja nýliðanámskeið. Á nýliðanámskeiðum eru m.a. veittar margvíslegar upplýsingar um starfsemina, fjallað er um grundvallaratriði álframleiðslu, stiklað er á stóru í sögu fyrirtækisins og áherslur í heilbrigðis-, öryggis-, umhverfis- og gæðamálum eru kynntar. 

Nýliði sem þarf lyftararéttindi starfsins vegna þarf að sækja þriggja daga vinnuvélanámskeið. Námskeiðið er greitt af fyrirtækinu. Starfsmanni er aðeins heimilt að stjórna vinnuvélum hafi hann fengið til þess þjálfun og réttindi. Hafi ökumaður einhverra hluta vegna misst almennt ökuskírteini gildir það einnig um vinnuvélaréttindi.

Starfsmönnum er skylt að mæta á öll boðuð námskeið, enda eru þeir á launum frá fyrirtækinu.  Reynt er að gefa upplýsingar tímanlega um stað og stund námskeiðanna.

Heilbrigðismál

Nýir starfsmenn undirgangast heilbrigðisskoðun hjá heilbrigðisstarfsmanni í Straumsvík áður en af ráðningu verður.

Fóstrakerfi

Nýliðar fá fóstra um leið og þeir hefja störf hjá fyrirtækinu. Fóstrinn fræðir og upplýsir nýliðann um flest sem viðkemur starfinu. Fóstri sýnir vinnustaðinn og fer markvisst yfir þau atriði sem skipta máli, hann svarar spurningum nýliðans og aðstoðar hann við að afla sér upplýsinga. Til fóstrans getur nýliðinn leitað með þau mál sem á honum brenna og fóstri gerir sitt besta til að láta nýliðanum líða vel á vinnustaðnum.