24.04.2005
Alcan fær heiðursviðurkenningu ÍBH
Í afmælishófi Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH), sem fagnar 60 ára afmæli sínu um þessar mundir, var Alcan veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir stuðning sinn við barna- og unglingastarf íþróttafélaganna í Hafnarfirði undanfarin ár.
Stuðningur fyrirtækisins er í formi fjárframlags, sem skipt er milli aðildarfélaga ÍBH samkvæmt ákvæðum í sérstökum samningi. Miðað er við að 60% af heildarupphæð samningsins skiptist eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en 40% upphæðarinnar er hins vegar skipt samkvæmt menntunarstigi þeirra sem sinna þjálfun og fræðslu á vegum félaganna.
Með þessari nálgun er ætlunin að hvetja til faglegra vinnubragða á sem flestum sviðum barna- og unglingastarfsins og tryggja þannig ánægju iðkendanna og aðstandenda þeirra.
Við þökkum ÍBH fyrir samstarfið og viðurkenninguna.
« til bakaDeila