20.09.2005
Fjölskylduganga 24. september - Munið eftir vasaljósunum
Síðasta gönguferðin af þremur í svokölluðum Haustgöngum Alcan verður farin á laugardaginn kemur. Í þetta skiptið verður gangan við hæfi allra í fjölskyldunni, þar sem m.a. nokkrir hellar verða skoðaðir. Nauðsynlegt er að taka vasaljós með í ferðina og gott er að hafa húfu á höfðinu, enda geta göngugarpar rekið höfuðið upp undir suma hellisveggina.
Mæting í þessa síðustu göngu haustsins er við Kaldársel kl. 13 á laugardaginn, en þar er frábær aðstaða fyrir börn til að hita sig upp fyrir gönguna eða leika sér að henni lokinni.
Gott er að taka nesti með í gönguna, en að henni lokinni verða léttar veitingar í boði í Kaldárseli.
Fólk er að sjálfsögðu hvatt til að fjölmenna ásamt fjölskyldum sínum og skoða þetta skemmtilega svæði.
« til bakaDeila