11.04.2006
Ráðningu sumarfólks að ljúka
Vel hefur gengið að ráða fólk til sumarstarfa og er sú vinna nú á lokastigi. Að vanda voru umsækjendur margir og höfðu á sjöunda hundrað umsókna borist þegar umsóknarfresturinn rann út þann 3. mars. Vegna þessarar miklu ásóknar í störf þurfti að hafna mörgum hæfum umsækjendum en við hvetjum þá til að sækja um aftur að ári.
Úrvinnsla umsóknanna var mun auðveldari nú en áður því nýlega var tekinn í notkun nýr hugbúnaður sem flýtir mjög fyrir allri vinnu við ráðningar. Nýja umsókna- og ráðningakerfið er hluti af launakerfinu H-laun 3, sem er líklega það mest notaða hér á landi, og við vorum fyrst til að taka upp þessa nýjustu viðbót við H-laun. Mörg fyrirtæki hafa í kjölfarið haft samband til að afla sér upplýsinga um kerfið, sem hefur reynst vel.
« til bakaDeila