07.06.2006
Styrkir vegna barna- og unglingastarfs íþróttafélaganna afhentir
Á þriðjudag fór fram í höfuðstöðvum Alcan á Íslandi í Straumsvík athöfn þar sem fulltrúar Alcan og Hafnarfjarðarbæjar færðu fulltrúum íþróttafélaganna innan vébanda ÍBH fjárframlög til styrktar barna –og unglingastarfi félaganna.
Á milli ÍBH, Alcan og Hafnarfjarðarbæjar hefur verið í gildi samningur frá árinu 2001 um stuðning við íþróttastarfið. Stuðningurinn var upphaflega 8 milljónir á ári með fjögurra milljón króna framlagi Alcan annars vegar og frá Hafnarfjarðarbæ hins vegar. Þessi upphæð er nú 10 milljónir með 5 milljón króna framlagi frá hvorum aðila. Úthlutun upphæðarinnar er tvískipt en fyrri úthlutun fer ávallt fram að vori og er þá úthlutað 60% upphæðarinnar á grundvelli iðkendafjölda félaganna og seinni úthlutunin fer fram í desember en þá er 40% upphæðarinnar úthlutað á grundvelli menntunarstigs þjálfara félaganna og námskrár þeirra.
Í þessari úthlutun nú var úthlutað samtals 6 milljónum króna sem skiptast samkvæmt ákvæðum samningsins á þau 11 félög sem sótt hafa um stuðning fyrir sitt barna-og unglingastarf. Eftirfarandi 11 félög hlutu styrk:
Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH), Knattspyrnufélagið Haukar, Fimleikafélagið Björk, Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH), Golfklúbburinn Keilir, Sundfélag Hafnarfjarðar (SH), Siglingaklúbburinn Þytur, Hestamannafélagið Sörli, Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH), Íþróttafélagið Fjörður og Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH).
Samningur þessi er íþróttafélögunum í Hafnarfirði gífurlega mikilvægur. Samningurinn hvetur íþróttafélögin til dáða að skila metnaðarfullu starfi á sviði íþrótta barna –og unglinga enda hefur mjög jákvæð þróun orðið á starfinu síðustu ár. Margir þættir skipta máli þegar kemur að því að meta gæði starfsins en margir þeirra mega sín lítils ef fjármagn vantar. Hafnarfjarðarbær hefur með ýmsu móti lagt sitt af mörkum til þess að hlúa að íþróttastarfinu í bænum og eru alltaf mörg verkefni sem bíða úrlausnar. Alcan er úr röðum fyrirtækja í dag sennilega einn stærsti styrktaraðili barna-og unglingaíþrótta á landsvísu.
« til bakaDeila