20.06.2006
Engin slys á fólki þrátt fyrir erfiðar aðstæður - Kerskáli 3 kominn úr rekstri
Öll ker í kerskála 3 eru nú komin úr rekstri, eftir að slökkt var á síðustu kerunum í nótt. Í gærkvöldi voru 120 af 160 kerum tekin úr rekstri og vonir stóðu til að hægt yrði að bjarga a.m.k. hluta þeirra 40 sem eftir voru. Sú varð ekki raunin og því liggur öll framleiðsla í kerskála 3 niðri.
Ástæða þessarar miklu truflunar er alvarleg bilun í rafbúnaði, sem olli 9 klukkustunda straumleysi í skálanum á mánudag. Straumleysið má rekja til bilunar í spennum í aðveitustöð en ekki er ljóst hvað olli þeirri bilun. Hennar varð fyrst vart um kl. 00:20 aðfararnótt mánudags og ekki tókst að koma rafstraumi á skálann fyrr en rúmum níu tímum síðar. Vonir stóðu til að hægt væri að bjarga stórum hluta keranna, en eftir því sem leið á mánudaginn varð ljóst að slíku yrði ekki við komið. Ker og tengdur búnaður voru illa farin eftir straumleysið, auk þess sem aðstæður fyrir starfsfólk voru orðnar erfiðar.
Tjón vegna þessara atburða er mikið og mun a.m.k. hlaupa á hundruðum milljóna króna. Mestu skiptir þó, að engin slys urðu á starfsfólki sem allt sýndi mikinn dug við erfiðar aðstæður. Það á skilið mikið hrós fyrir samstöðu, yfirvegun og fagmennsku.
Bilunin er mikið áfall fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins, enda hefur tæknilegur rekstur álversins verið mjög traustur mörg undafarin ár. Strax verður hafist handa við viðgerðir á búnaði sem skemmdist.
Rannveig Rist
« til bakaDeila