29.06.2006
Straumsleysi heyrir sögunni til!
Listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur, myndhöggvara, var afhjúpað við höfuðstöðvar Alcan í Straumsvík þann 28. júní í tilefni af 40 ára afmæli ISAL. Steinunn hafði gefið verkinu nafnið Straumur og sagðist Rannveig Rist, forstjóri Alcan, við afhjúpun verksins vera ánægð með nafnið því það hefði einmitt verið Straum-leysi sem hefðii valdið vandræðum okkar í síðustu viku. Nú væri búið að gera bragarbót á því og þess vegna ekkert því til fyrirstöðu að reksturinn kæmist á fullt að nýju innan skamms.
Steinunn Þórarinsdóttir er einn þekktasti íslenski myndhöggvari samtímans. Hún hefur haldið á þriðja tug einkasýninga á undanförnum 22 árum, bæði hér heima og ekki síður erlendis. Auk þess hefur hún tekið þátt í ótal mörgum samsýningum og verk hennar hafa hvarvetna notið mikillar athygli. Verkið sem afhjúpað var hér í Straumsvík skiptist raunar í tvo hluta, því hluti þess er inni í Faðmi og kallast á við við styttuna sjálfa og umhverfi hennar fyrir framan bygginuna.
« til bakaDeila