21.11.2006
Tvö heimsmet í Straumsvík
Undanriðlar í keppninni um titilinn Sterkasti maður í heimi, sem haldin var hér í Straumsvík á mánudag, heppnuðust vel. Kraftakarlarnir létu nokkurn kulda ekki trufla sig og tvö heimsmet voru sett í keppninni. Nicky Best frá Bandaríkjunum setti heimsmet í svokallaðri bændagöngu og Zydrunas Savickas frá Litháen í einni lyftingagreininni.
Umgjörð keppninar var hin glæsilegasta, ekki síst vegna mikillar vinnu starsfmanna álversins sem lögðu mikið á sig til að keppnin gæti gengið sem best.
Úrslit keppninnar fara svo fram í Reiðhöllinni í Víðidal á föstudag og laugardag.
Alls tóku 24 kraftakarlar þátt í keppninni, frá 16 löndum. Þrír Íslendingar voru í þeim hópi, þeir eru Benedikt Magnússon, Stefán Pétursson og Georg Ögmundsson.
Við þökkum kraftakörlunum og aðstandendum keppninar fyrir gott samstarf og óskum þeim til hamingju með frábæran árangur.
« til bakaDeila