24.11.2006
Starfsmenntaverðlaunin 2006 í okkar hlut!
Starfsmenntaverðlaunin 2006 voru afhent á föstudag og í flokki fyrirtækja hlaut Alcan verðlaunin. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við skemmtilega athöfn að viðstöddu fjölmenni í Húsi atvinnulífsins en þetta er í annað sinn á sex árum sem Starfsmenntaverðlaunin koma í okkar hlut.
Við erum stolt af þeim mikla heiðri sem starfsmönnum og fyrirtækinu er sýndur með verðlaununum en að baki þeim stendur Mennt, samstarfsvettvangur aðila vinnumarkaðarins, skóla á framhalds- og háskólastigi og sveitarfélaga.
Starfsmenntaverðlaunin hlýtur Alcan fyrir starfsemi Stóriðjuskólans, en hann hefur frá árinu 1998 gegnt lykilhlutverki í rekstrinum og ítrekað sannað gildi sitt. Nærtækasta dæmið er sá árangur sem náðist á liðnu sumri eftir að alvarleg rafmagnsbilun olli rekstrarstöðvun í kerskála 3. Með ótrúlegum hætti tókst að koma kerskálanum aftur í gang tveimur mánuðum fyrr en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og það er okkar skoðun að tilvist Stóriðjuskólans hafi þar skipt sköpum. Með honum hefur byggst upp mikil fagleg þekking á rekstrinum auk þess sem skólinn hefur tryggt ákveðna samræmingu meðal starfsmanna.
Við metum Starfsmenntaverðlaunin mikils og þau verða okkur hvatning til að gera enn betur á komandi árum. Við þökkum öllum sem komið hafa að rekstri Stóriðjuskólans fyrir samstarfið og óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Smelltu hér til að fræðast nánar um Mennt, samstarfsvettvang atvinnulífs og skóla.
« til bakaDeila