04.02.2007
Sumarstörf - Sækið um fyrir 18. febrúar
Viltu starfa á fjölbreyttum vinnustað og tilheyra skemmtilegum hópi starfsmanna í sumar?
Við ætlum að ráða 120 ábyrga einstaklinga af báðum kynjum til ýmissa starfa á tímabilinu 15. maí til 1. september, eða eftir samkomulagi.
Við leitum að heiðarlegu, duglegu og traustu fólki og leggjum áherslu á samvinnu og hæfni í mannlegum samskiptum. Allt nýtt fólk fær markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, hvort sem það ræðst til starfa í kerskálum, steypuskála, mötuneyti, ræstingum eða annars staðar.
Umsækjendur þurfa að verða a.m.k. 18 ára á árinu.
Margir sumarstarfsmenn munu vinna á þrískiptum vöktum þar sem unnar eru 6 vaktir á 5 dögum með 5 daga vaktafríi á milli. Einnig verður ráðið sumarstarfsfólk sem mun vinna eftir öðru fyrirkomulagi.
Hægt er að sækja um hér á síðunni, með því að smella hér og fylla út eyðublaðið fyrir 18. febrúar.
« til bakaDeila