06.03.2007
Miðstjórn RSÍ styður stækkun álversins
Fundur miðstjórnar Rafiðnaðarsambands Íslands þann 2. mars 2007 mælir með fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík, enda verði þar settar upp bestu mengunarvarnir sem völ er á hverju sinni. Þrátt fyrir að álframleiðsla Alcan í Straumsvík meira en tvöfaldist eftir stækkunina er það yfirlýst að loftgæði verða undir öllum mörkum sem sett hafa verið innan sem utan lóðamarka álversins.
Íslendingar hafa í vaxandi mæli á undanförnum misserum upplifað að fjölmörg störf í iðnaði hafa verið flutt úr landi. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um 1200 ný og varanleg störf, þarf af um 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850.
« til bakaDeila