11.03.2007
Kvikmynd um álverið og fyrirhugaða stækkun
Búið er að setja saman stutta kvikmynd um álverið í Straumsvík og fyrirhugaða stækkun þess og er hægt að skoða hana með því að smella hér . Tilgangur myndarinnar er að auðvelda Hafnfirðingum að átta sig á aðstæðum í álverinu og hvaða áhrif fyrirhuguð stækkun gæti haft. Máltækið segir að mynd segi meira en þúsund orð þannig að kvikmynd segir vafalítið ennþá meira. Þessi miðill er því afar góður vettvangur til að miðla upplýsingum varðandi stækkun álversins. Myndin er 11 mínútna löng.
Smelltu hér til að sækja myndina.
« til bakaDeila