02.04.2007
Niðurstaða fengin
Mjótt var á munum milli fylkinganna tveggja sem tókust á um framtíð álversins í Straumsvík í íbúakosningu þann 31. mars. Alls greiddu 12.747 atkvæði í kosningunni, eða um 76,6% þeirra sem voru á kjörskrá. 6.382 kjósendur voru andvígir stækkun en 6.294 hlynntir. Niðurstaða í málið er þess vegna fengin, þótt óneitanlega hefðum við viljað að hún yrði önnur.
Við færum öllum þeim þakkir sem fóru á kjörstað til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar við að tryggja framtíð álversins. Starfsmönnum þökkum við innilega fyrir frábært starf í aðdraganda þessara mikilvægu kosninga en sigurvegurunum óskum við til hamingju með úrslitin.
« til bakaDeila