20.12.2007
Dagatal Alcan á Íslandi hf.,
Alcan á Íslandi hf. gefur nú út dagatal annað árið í röð. Það er okkur sönn ánægja að styrkja lista- og menningarlíf í Hafnarfirði og að þessu sinni prýða verk listakvennanna í gallerí Thors síður dagatalsins.Að gallerí Thors standa tíu listakonur af ýmsum sviðum listsköpunar og ásamt því að selja listmuni sína reka þær lítið kaffihús á staðnum.
Á milli jóla og nýárs verður dagatalinu dreift til fyrirtækja og heimila í Hafnarfirði sem ekki afþakka fjölpóst.
Við vonum að allir njóti vel.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Alcan á Íslandi hf.
« til bakaDeila