31.10.2008
Ólafur Teitur Guðnason ráðinn framkvæmdastjóri Samskiptasviðs
Ólafur Teitur Guðnason hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Samskiptasviðs Alcan á Íslandi hf. Hann er fæddur 2. október 1973 og er kvæntur Engilbjörtu Auðunsdóttur og eiga þau tvo syni. Ólafur Teitur er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur níu ára reynslu af störfum við fjölmiðla, lengst af hjá Ríkisútvarpinu og Viðskiptablaðinu. Frá árinu 2007 hefur hann verið fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.
f.h. Alcan á Íslandi hf.
Rannveig Rist
forstjóri
« til bakaDeila