29.12.2008
Rannveig Rist maður ársins í íslensku atvinnulífi
Tímaritið Frjáls verslun hefur útnefnt Rannveigu Rist mann ársins í íslensku atvinnulífi árið 2008.
Í tilkynningu frá tímaritinu segir að Rannveig hljóti þennan heiður "fyrir mikla leiðtogahæfileika, hæfni við rekstur álversins í Straumsvík, farsælan feril, frumkvöðlastarf á sviði menntunar í stóriðju og forystu í málefnum kvenna í atvinnulífinu um langt skeið". Jafnframt er bent á að Alcan á Íslandi hf. hafi fyrr á árinu greitt upp allar sínar skuldir.
Ítarlegt viðtal verður við Rannveigu í næsta tölublaði Frjálsrar verslunar sem væntanlegt er í verslanir.
Frjáls verslun hefur útnefnt mann ársins allt frá árinu 1988 og er þetta því í 21. sinn sem viðurkenningin er veitt. Rannveig er fyrsta konan sem hlýtur viðurkenninguna óskipta en árið 1993 voru hjónin Guðrún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðsson, eigendur Stálskips, útnefnd menn ársins af tímaritinu.
Dómnefndina sem stóð að valinu skipuðu þeir Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Heims (formaður dómnefndar), Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsrar verslunar, Gylfi Magnússon dósent við Háskóla Íslands, Jón Helgi Guðmundsson forstjóri Norvikur og Sigurður Helgason stjórnarmaður í Finnair.
« til bakaDeila