20.05.2009
Grænt bókhald 2008
Grænt bókhald Alcan á Íslandi fyrir árið 2008 er komið út en í því er að finna ýmsar lykiltölur sem snúa að frammistöðu ISAL í umhverfismálum. Í skýrslunni eru einnig greinargóðar lýsingar á framleiðsluferlinu, uppruna losunar og aðgerða til að lágmarka losun. Ýmislegt markvert er að finna í henni og ber þar hæst góður árangur við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en frammistaðan er ein sú besta sem þekkist innan áliðnaðarins. Einnig segir frá góðum loftgæðum á Hvaleyraholti en ný loftgæðastöð var tekin í notkun 2007 og eru niðurstöðurnar aðgengilegar á veraldarvefnum. Við vonum að lesendum skýrslunnar þyki hún aðgengileg, ítarleg og upplýsandi og viljum gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara.
Grænt bókhald 2008
« til bakaDeila