22.02.2010
Sumarstörf í Straumsvík - umsóknarfrestur til mánudagsins 1. mars
Viltu starfa á fjölbreyttum vinnustað og tilheyra skemmtilegum hópi starfsmanna í sumar? Við hvetjum þig til að sækja um hjá okkur. Við ætlum að ráða ábyrga einstaklinga til ýmissa starfa á tímabilinu 15. maí til 1. september, eða eftir samkomulagi.
Við leitum að duglegu og traustu fólki og leggjum áherslu á samvinnu og hæfni í mannlegum samskiptum. Allt nýtt starfsfólk fær markvissa þjálfun í upphafi starfstíma, hvort sem það ræðst til starfa í kerskálum, steypuskála, mötuneyti, verkstæðum eða annars staðar.
Umsækjendurnir þurfa að vera orðnir 18 ára eða verða það á árinu. Margir sumarstarfsmenn munu vinna á þrískiptum 8 klst. vöktum þar sem unnar eru 6 vaktir á 5 dögum með 5 daga vaktafríi á milli. Einnig verður ráðið sumarstarfsfólk sem mun vinna eftir öðru fyrirkomulagi.
« til bakaDeila