16.04.2010

Landsvirkjun birtir gagnlegar upplýsingar um orkuverð

Landsvirkjun hefur á ársfundi sínum í dag birt gagnlegar upplýsingar um raforkuverð sem eru til þess fallnar að stuðla að málefnalegri umræðu og hrinda rangfærslum sem stundum hefur verið haldið fram um raforkusölu til stóriðju.

Í kynningu Landsvirkjunar kemur fram að verðið frá Landsvirkjun til stóriðju er um 2,5 krónur á kWh en um 3,5 krónur til almenna markaðarins. Eins og fram kom í máli forstjóra Landsvirkjunar á þessi munur sér eðlilegar viðskiptalegar skýringar og ætti í raun að vera meiri, með hliðsjón af því m.a. að nýtingarhlutfall stóriðjunnar er um 96% en nýtingarhlutfall á almennum markaði er aðeins 56%.

Lágt nýtingarhlutfall á almennum markaði þýðir að tæplega helmingur af uppsettu afli fer til spillis, en aflið þarf engu að síður að vera til reiðu til að anna toppum í eftirspurn. Aftur á móti fer nær ekkert af því afli sem sett hefur verið upp fyrir stóriðju til spillis. Munurinn á verði til stóriðju og almenna markaðarins er minni en svo að hann endurspegli þessa staðreynd til fulls.

Auk þess kemur fram að raforkuverð til almennings hefur lækkað mikið að raungildi á undanförnum árum og er mjög lágt í alþjóðlegum samanburði.

Það er því niðurstaða Landsvirkjunar að virkjanir fyrir stóriðju hafi ekki leitt til hærra raforkuverðs til almennings.

Alþjóðlegur samanburður á orkuverði til álvera sýnir að álver á Íslandi greiddu nánast meðalverð árin 2007 og 2008 þegar álverð var hátt. Á öðrum tímum hefur verðið verið mismikið undir heimsmeðaltali en fráleitt með því lægsta sem þekkist í heiminum eins og gjarnan er gefið í skyn.

Orkuverð til álvera í heiminum er mjög breytilegt, allt frá undir 10 mills (Bandaríkjasentum) á kWh upp í yfir 70 mills. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra álvera sem greiða hæst verð er í Kína, eins og meðfylgjandi súlurit ber með sér, en það sýnir magn áls sem framleitt var fyrir tiltekið verðbil á raforku árið 2008. Þess má geta að  hvergi í heiminum, að Kína undanskildu, eru byggð ný álver á grundvelli raforkukaupa yfir heimsmeðaltali. Súluritið sýnir að orkuverð til stóriðju á Íslandi er í samræmi við algengt verð til álvera í heiminum, eða um 25 mills, eins og fram kemur í kynningu Landsvirkjunar sem nálgast má á vef fyrirtækisins.


 


« til baka

Fréttasafn

2024

apríl, febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar