17.05.2010
Sjálfbærniskýrsla ISAL 2009
Alcan á Íslandi hf. hefur í fyrsta sinn gefið út sjálfbærniskýrslu, sem er greinargerð um frammistöðu fyrirtækisins á sviði umhverfis-, samfélags- og efnahagsmála á liðnu ári. Útgáfa skýrslunnar styður við stefnu fyrirtækisins um að starfsemi þess sé í sátt við umhverfi og samfélag og í anda sjálfbærrar þróunar.
Um árabil hefur Alcan á Íslandi hf. unnið samkvæmt metnaðarfullri stefnu sem m.a. styður við markmið þess um sjálfbæra þróun. Til stuðnings þessari stefnu hefur fyrirtækið allt frá árinu 2003 gefið út grænt bókhald í samræmi við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Sjálfbærniskýrslan sem fyrirtækið hefur nú gefið út inniheldur sömu upplýsingar og hafa komið fram í grænu bókhaldi en nú hefur verið bætt við upplýsingum um fleiri atriði sem snerta sjálfbærni. Hugtakið sjálfbærni er jafnan talið ná til umhverfislegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta. Þessi viðmið voru höfð að leiðarljósi við gerð sjálfbærniskýrslunnar þótt kaflaskipting hennar endurspegli rekstur fyrirtækisins og helstu áherslur þess.
Í sjálfbærniskýrslunni er að finna upplýsingar um frammistöðu Alcan á Íslandi hf. á sviði umhverfis-, samfélags- og efnahagsmála fyrir árið 2009. Farið er yfir þann árangur sem náðist á árinu og jafnframt er gerð grein fyrir helstu áherslum á yfirstandandi ári. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að starfsemi þess sé í sátt við umhverfi og samfélag og í anda sjálfbærrar þróunar og styður útgáfa sjálfbærniskýrslu við þá stefnu.
Hægt er að nálgast skýrsluna í rafrænu formi með því að smella á hlekkinn hér að neðan:
« til bakaDeila