20.08.2010
Búið að ráða niðurlögum elds
Á tíunda tímanum í kvöld, fimmtudagskvöldið 19. ágúst, kviknaði eldur í kjallara steypuskála álversins í Straumsvík. Engin slys urðu á fólki en umtalsverðan reyk lagði frá steypuskálanum.
Slökkvilið álversins kallaði slökkvilið höfuðborgarsvæðisins á vettvang. Tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins að mestu leyti upp úr klukkan 23 og var hann slökktur að fullu nokkru síðar. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór af vettvangi um miðnætti en slökkvilið álversins vaktar svæðið.
Ekki er vitað með vissu hvað olli brunanum en hugsanlegt er að bráðið ál hafi lekið í kjallarann og kveikt þar í rafmagnsköplum og svo virðist sem það hafi einkum verið rafmagnskaplar sem brunnu.
Ekki er ljóst hve mikið tjón hlýst af brunanum en fyrir liggur að einhver truflun mun verða á starfsemi álversins.
« til bakaDeila