26.08.2010
Fjórðungur starfsmanna hljóp og safnaði milljón
Rio Tinto Alcan afhenti í dag eina milljón króna í styrki til góðgerðamála. Styrkirnir voru veittir í tengslum við þátttöku starfsmanna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, en alls hlupu starfsmenn álversins um það bil 1.000 kílómetra.
Fyrirtækið lagði fram 100.000 krónur fyrir hvern hlaupahóp starfsmanna. Alls skráðu 105 starfsmenn sig til þátttöku, eða tæplega fjórðungur starfsmanna fyrirtækisins. Þeir skipuðu sér í tíu hlaupahópa og nam því heildarfjárhæð styrkjanna einni milljón króna. Hóparnir réðu því sjálfir hvaða góðgerðamál þeir styrktu.
Fulltrúum félagasamtakanna sem hlutu styrk var boðið til athafnar í álverinu í Straumsvík þar sem þeir tóku á móti styrkjunum frá fulltrúum hlaupahópanna og nutu jafnframt kaffiveitinga með starfsmönnum fyrirtækisins.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrk:
- Barnaspítalasjóður Hringsins (tveir styrkir)
- Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki
- Einstök börn
- Krabbameinsfélag Íslands
- Ljósið
- MND félagið á Íslandi
- Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna
- Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (tveir styrkir)
Henning Ejerskov Sörensen starfsmaður rannsóknastofu ISAL afhendir fulltrúum Barnaspítalasjóðs Hringsins styrk fyrir hönd síns hlaupaliðs
« til bakaDeila