13.10.2010
Samingur um viðauka við aðalsamning undirritaður
Í dag undirrituðu Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi hf. og Sigurður Þór Ásgeirsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alcan á Íslandi hf. samning um viðauka við aðalsamning á milli ríkisstjórnar Íslands og Alcan á Íslandi hf. Um er að ræða áttunda viðauka við aðalsamninginn frá árinu 1966.
Með nýjum raforkusamningi á milli Alcan á Íslandi hf. og Landsvirkjunar, sem undirritaður var 15. júní sl., var annars vegar endursamið um verð á allri núverandi orkusölu til álversins og hins vegar samið um afhendingu á viðbótarorku (75 MW) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins í Straumsvík. Nýji raforkusamningurinn kemur í stað eldri raforkusamnings á milli Alcan á Íslandi hf. og Landsvirkjunar en í aðalsamningnum frá 1966 er víða vísað í eldri raforkusamninginn sem hingað til hefur verið „fylgiskjal A“ við aðalsamning. Þar sem ætlunin er að hinn nýji raforkusamningur verði sjálfstæður samningur og með öllu ótengdur aðalsamningnum varð nauðsynlegt að gera viðeigandi breytingar á texta aðalsamningsins, þ.e. að afnema „fylgiskjal A“ og hreinsa aðalsamninginn af öllum ákvæðum þar sem vísað er í raforkusamning eða kveðið á um afhendingu raforku.
Með þeim viðaukasamningi við aðalsamninginn sem undirritaður var í dag eru því gerðar framangreindar nauðsynlegar breytingar á aðalsamningnum, þannig að unnt sé að líta á aðalsamninginn frá 1966 og hinn nýja raforkusamning sem tvo sjálfstæða og ótengda samninga. Viðaukasamningurinn verður lagður fyrir Alþingi til að veita honum lagagildi, alveg eins og gert var á sínum tíma við aðalsamninginn frá 1966 og þá sjö viðauka sem gerðir hafa verið frá árinu 1966.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi hf. að lokinni undirritun samningsins.
« til bakaDeila