17.05.2011
Sjálfbærniskýrsla ISAL fyrir 2010
Sjálfbærniskýrsla ISAL fyrir árið 2010 er komin út. Í henni er yfirlit yfir árangur ársins og áherslur í helstu málaflokkum, svo sem umhverfismálum, öryggismálum, heilbrigðismálum og samfélagsmálum auk upplýsinga um efnahagsleg umsvif fyrirtækisins.
Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að:
- Losun flúoríðs var sú minnsta í sögu álversins, og má m.a. rekja þann árangur til endurbóta á þurrhreinsistöðvum sem gerðar voru að frumkvæði starfsmanna og byggja á hugviti þeirra.
- Engin slys urðu í fyrstu þremur slysaflokkunum en 22 í fjórða flokki. Misstig voru þar algengustu tilvikin eða sex talsins.
- Útblástur brennisteinsdíoxíðs (SO2) var sá minnsti í sex ár. Mælingar á Hvaleyrarholti sýndu að magn SO2 í andrúmsloftinu fór hæst í um það bil 1/10 af heilsuverndarmörkum, bæði hvað varðar sólarhringsmeðaltal og klukkustundarmeðaltal.
- Álframleiðsla í kerskálum nam 189.965 tonnum, sem er met.
- Styrkir og styrktarsamningar fyrirtækisins námu 46 milljónum króna á árinu. Þar af var 13 milljónum veitt úr Samfélagssjóði, 6 milljónir runnu til barna- og unglingastarfs íþróttafélaganna í Hafnarfirði og 5,5 milljónir runnu til að hrinda af stað samstarfsverkefni um endurheimt votlendis í því skyni að draga úr losun CO2 úr jarðvegi. Allt framangreint eru viðvarandi verkefni hjá ISAL á næstu árum.
- Álverið keypti vörur og þjónustu af mörg hundruð íslenskum fyrirtækjum fyrir 6,8 milljarða króna á árinu, fyrir utan rafmagn. Reiknaður tekjuskattur (til greiðslu á þessu ári) nam 1,7 milljörðum og orkuskattur um 350 milljónum.
- Framkvæmdir hófust á árinu við stærsta fjárfestingarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi frá hruni. Útgjöld álversins á Íslandi vegna verkefnisins námu 3,3 milljörðum króna á árinu og í árslok unnu á þriðja hundrað manns við verkefnið.
- Kvartanir frá samfélaginu voru sjö, en tvær árið áður. Aukningin skýrist einkum af hávaða vegna bilunar í hljóðdeyfi löndunarbúnaðar, sem olli miklu ónæði í nágrannabyggðum um skeið.
Hægt er að sækja rafrænt eintak af skýrslunni með því að smella hér.
« til bakaDeila