05.01.2012
Samtökin Barnabros njóta góðs af öryggisátaki
Þróunarverkefni Rio Tinto Alcan á Íslandi er nú í fullum gangi og fjöldi starfsmanna og verktaka vinna að endurbótum og uppfærslu á verksmiðjunni. Helsta forgangsmál Rio Tinto Alcan er að hámarka öryggi þeirra sem vinna á svæðinu. Meðal aðgerða sem við höfum gripið til í þeim efnum er innleiðing svokallaðra "samskiptakorta", en á þeim gefst verktökum færi á að koma á framfæri ábendingum um aðgerðir sem geta haft jákvæð áhrif á öryggi þeirra sem vinna á svæðinu, heilsu og starfsumhverfi.
Þessi kort hafa reynst vel og í ljósi þess var ákveðið að setja af stað sérstakt átak sem miðar að því að fá sem flestar ábendingar frá verktökum. Ætlunin er að styrkja góðgerðasamtök um ákveðna fjárhæð fyrir hvert samskiptakort sem skilað er inn. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið góðar því fjöldi ábendinga jókst um 80% frá fyrri mánuði.
Fyrstu góðgerðasamtökin sem njóta góðs af þessu átaki er samtökin Barnabros, en þau hafa það markmið að laða fram bros sem flestra barna á Íslandi, og hlutu samtökin 180.000 krónur í styrk. Stefnt er á að veita styrki vegna innsendra korta reglulega og gefst verktökum kostur á að kjósa um hvaða góðgerðasamtök skuli styrkja hverju sinni. Andrea, fulltrúi Barnabrosa veitti styrknum móttöku og sagði hann myndu gleðja mörg börn sem virkilega þurfa á því að halda. Hún vildi jafnframt þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að leggja samtökunum lið.
Átakið mun halda áfram á meðan þróunarverkefni Rio Tinto Alcan á Íslandi stendur yfir, og hvetjum við því verktaka til að gera enn betur næstu mánuði í skilum korta og láta þannig gott af sér leiða til þeirra sem á þurfa að halda.
Eyþór Sigfússon, leiðtogi heilsu-, öryggis- og umhverfismála í þróunarverkefni Rio Tinto Alcan á Íslandi, afhendir Andreu hjá Barnabrosum afrakstur mánaðarins.
« til bakaDeila