28.03.2012
Vinnuslys
Laust heftir hádegi varð slys á deigluverkstæði álversins þegar þung byrði, um fimm tonna tjakkur, datt úr krana og á fót starfsmanns þannig að hann var fastur undir. Sjúkrabíll, lögregla og slökkvilið voru kölluð til og komu á vettvang um hálf-tvö. Um hálftíma síðar tókst að losa byrðina af fæti starfsmannsins og var farið með hann á sjúkrahús til aðhlynningar. Ljóst er að starfsmaðurinn er slasaður á fæti. Ekki er hægt að fullyrða á þessu stigi hversu alvarlegir áverkarnir eru en líðan starfsmannsins mun hafa verið góð eftir atvikum.
Uppfært fimmtudaginn 29. mars:
Starfsmaðurinn er að jafna sig eftir aðgerð sem hann gekkst undir í gær, miðvikudag. Hægri fótleggur hans (fyrir neðan hné) lenti undir byrðinni og það mun væntanlega koma í ljós á næstu dögum hvort þeir áverkar jafna sig að fullu. Líðan hans er góð eftir atvikum en hann verður enn um sinn á sjúkrahúsi til að jafna sig. Tildrög slyssins eru enn til rannsóknar og því fátt hægt að segja um þau á þessu stigi, en ljóst er að það slitnaði kranavír, sem lyfti umræddri byrði og átti að þola hana.
« til bakaDeila