04.07.2013
Bilun í hljóðdeyfi löndunarkrana
Hljóðdeyfir súrálslöndunarkrana álversins bilaði í gær. Af þeim sökum drynur talsvert í honum á meðan súráli er landað en sú vinna fer fram allan sólarhringinn þar til löndun lýkur.
Gera má ráð fyrir að þetta valdi nágrönnum álversins einhverju ónæði, en það mun að mestu ráðast af vindátt.
Löndun stendur nú yfir og henni lýkur á mánudag.
Næsta löndun verður um næstu mánaðamót og mun líklega standa yfir í um sex sólarhringa. Því miður er ljóst að ekki verður búið að gera við bilunina þá, vegna þess að varahlutur er ekki til á landinu og mun ekki berast fyrr en eftir 6-8 vikur.
Vonast er til að viðgerð verði lokið þegar landað verður um mánaðamótin ágúst-september en brugðið gæti til beggja vona með það.
Við biðjumst afsökunar á því ónæði sem þessi bilun kann að valda nágrönnum okkar.
« til bakaDeila