23.10.2015
Starfsfólk óskast
Rio Tinto Alcan á Íslandi óskar eftir að ráða annars vegar almenna starfsmenn og hins vegar iðnaðarmenn.
Almennir starfsmenn:
Við leitum að almennum starfsmönnum í kerskála, steypuskála og skautsmiðju.
Störfin eru ýmist unnin í dagvinnu, á tvískiptum vöktum eða þrískiptum vöktum.
Starfsmenn fara á lyftaranámskeið hafi þeir ekki þegar réttindi.
Nánari upplýsingar veita Halla Dóra Sigurgeirsdóttir og Ármann Albertsson í síma 560 7000.
Vélvirkjar, vélfræðingar og bifvélavirkjar:
Um er að ræða fjölbreytt störf á verkstæðum fyrirtækisins sem eru unnin í dagvinnu og vaktavinnu.
Störfin lúta að fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á framleiðslu- og vélbúnaði, bilanagreiningu á framleiðslubúnaði og almennri viðgerðarvinnu.
Umsækjendur þurfa að hafa sveinspróf í vél- eða bifvélavirkjun.
Nánari upplýsingar veita Ágúst H. Jóhannesson verkstjóri aðalverkstæðis og Jóhann Samsonarson verkstjóri vinnuvélaverkstæðis í síma 560 7000.
-----------------
Lögð er rík áhersla á öryggismál starfsmanna og er markviss þjálfun í upphafi starfstíma. Umsækjendur þurfa að gangast undir læknisskoðun áður en þeir hefja störf.
Áhugasamir vinsamlega fylli út atvinnuumsókn með því að smella hér og velja svo viðeigandi hlekk eftir því hvaða starf er sótt um.
Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2015.
« til bakaDeila