06.06.2017
Útskrift í Stóriðjuskólanum
Tíu nemendur útskrifuðust frá Stóriðjuskólanum fyrir helgi við hátíðlega athöfn í Straumsvík. Þetta var nítjándi námshópurinn sem lýkur grunnnámi skólans frá stofnun hans árið 1998. Þar með hafa 242 starfsmenn ISAL lokið þessu námi frá upphafi.Við útskriftina flutti Rannveig Rist forstjóri ávarp og gerði hún nýjar áherslur og stefnu ISAL að sérstöku umtalsefni en þær voru kynntar í mars sl. Benti hún á að þau fimm áhersluefni sem stefnan hvílir á kallast vel á við námið í skólanum. Áhersluatriðin eru skaðlaus vinnustaður, öflug liðsheild, verðmætasköpun, samtarfsaðilar og vöxtur. Rannveig ræddi einnig í ávarpi sínu þann gagnkvæma ávinning sem nemendur og fyrirtækið hafa af Stóriðjuskólanum og að hann hefði fyrir löngu sannað gildi sitt.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðaráðherra, flutti ávarp við útskriftina þar sem hún vék sérstaklega að vægi og gildi Stóriðjuskólans og hversu vermæt handtök þeirra sem vinna í Straumsvík eru. Einnig fjallað hún vítt og breitt um vægi og gildi álframleiðslu á Íslandi og mikilvægi þess að umhverfisvænir orkukostir væru nýttir til framleiðslunnar hér á landi.
Að lokum flutt Loftur Óskar Grímsson skemmtilegt ávarp fyrir hönd útskriftarnema þar sem hann lýsti ánægjulegri reynslu og upplifun af náminu.
Harpa Björg Guðfinnsdóttir leiðtogi fræðslumála afhenti prófskirteini og Rannveig Rist forstjóri veitti viðurkenningar. Hlynur Björnsson var dúx með einkunnina 9,5. Semidux var Andri Karlsson með einkunnina 9,1 og Loftur Óskar Grímsson var með þriðju hæstu einkunnina 9,07. Aðrir sem útskrifuðust eru Daníel Birkir Jónsson, Davíð Hrinsson, Garðar Örn Róbertsson, Ragnar Daði Jóhansson, Rúnar Ingi Sigurðsson, Stefán Hjaltalín og Þórarinn Guðni Sveinsson.
Viðurkenningu fyrir 100% mætingu fengu Davíð Hreinsson, Hlynur Björnsson, Ragnar Daði Jóhannsson og Stefán Hjaltalín.
Kennslustundir í grunnnáminu eru alls 344. Um kennsluna sáu sérfræðingar ISAL ásamt utanaðkomandi kennurum.
« til bakaDeila