12.09.2017
Nýr súrálslöndunarkrani í Straumsvík
Nýr súrálslöndunarkrani er væntanlegur á höfnina í Straumsvík en skrifað hefur verið undir samning um kaup á nýjum krana. Núverandi löndunarkrani hefur verið á höfninni í Straumsvík frá því að álverið tók til starfa árið 1969 og er kominn til ára sinna. Kraninn, eða Heberinn eins og hann er venjulega kallaður í Straumsvík, var upphaflega skóflukrani en var breytt í ryksugukrana árið 1980.Nýi kraninn kemur frá svissneska fyrirtækinu Alesa og byggir á sömu tækni og gamli kraninn en hefur meiri afkastagetu, mengar minna og er mun hljóðlátari.
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi og Patrick Ernst forstjóri Alesa skrifuðu undir samninginn.Verðmæti hans er ríflega einn milljarður króna. Gert er ráð fyrir að nýi kraninn verði komið í gagnið í árslok 2018 eða snemma árs 2019.
« til bakaDeila