03.01.2005
Alcan jafnar framlög starfsmanna
Ákveðið hefur verið, að Alcan á Íslandi jafni framlög starfsmanna sinna sem taka þátt í símasöfnun Rauða Krossins sem hófst í kjölfar hörmunganna í SA-Asíu. Strax á öðrum degi jóla opnaði Rauði krossinn söfnunarsímann 907 2020 en með því að hringja í hann skuldfærast 1.000 krónur af símreikningi þess sem hringir.
Í bréfi sínu til starfsmanna segist Travis vonast til þess, að mótframlag fyrirtækisins verði hvatning til starfsmanna sem geta tvöfaldað sitt framlag með auðveldum hætti. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að taka þátt og styðja þannig það mikla hjálparstarf sem er í gangi.
« til bakaDeila